Það er svo skemmtilegt þegar maður kynnist maka sínum að heyra af jólahefðum sem hann hefur átt í sinni æsku. Sem betur fer voru jólahefðirnar á heimilum okkar Ragga mjög svipaðar.
Hamborgarahryggur á aðgangadag, hangikjöt á jóladag, jólatré skreytt á Þorláksmessu og fleira sem hefur eflaust tíðkast í gamla daga á Íslandi á mörgum heimilum.
Það eru hins vegar tvær jólahefðir sem hann kom með inn í okkar samband sem við höfum ákveðið að viðhalda, enda gaman að taka eitthvað frá báðum og gera það að hefð fyrir okkar eigin fjölskyldu.
Svo búum við til okkar eigin hefðir líka, sem börnin okkar munu svo vonandi tileinka sér í framtíðinni.
Þessar tvær jólahefðir sem Raggi kom með inn í hjónabandið er Sykurpúða salat með hamborgarahryggnum og svo Engiferkökur fyrir hver jól.
Sykurpúða salatið er skemmtilega öðruvísi og fer afar vel með söltu kjötinu, en það samanstendur af ávöxtum, kókós, sykurpúðum og sýrðum rjóma.
Hráefni
- 1 dós sýrður rjómi
- 1/2 bolli kókósmjöl
- 1 dós mandarínur (fæst í Bónus)
- 1 dós ananas (lítil dós 230 gr)
- Sykurpúðar stórir. Magn eftir smekk, ég nota rúmlega hálfan poka og klippi þá niður í 4 bita. Gerir c.a 200 gr sykurpúða
Aðferð
- Skerið ananasinn niður í litla bita. Setjið svo ananasinn og mandarínurnar með helmingnum af safanum úr hverri dós í skál
- Sáldrið Kókósmjölinu yfir allt og svo sykurpúðunum.
- Setjið svo sýrða rjómann á allt og hrærið vel saman.
- Geymið í kæli 2 klst áður en borið er fram en því lengur því betra. Gott að gera um morguninn ef bera á fram um kvöldið
Punktar
Salatið er mjög auðvelt í framkvæmd en best er að gera það svona 1-2 klst áður en það er borið fram og geyma í ísskáp fram að því.
Væri ekki gaman að prófa eitthvað nýtt og spennandi með jólasteikinni í ár ? Þá er þetta salat alveg tilvalið í það.
Verði ykkur að góðu
María
4 Athugasemdir
Líst vel á þetta, ætla að prófa, takk fyrir þessa uppskrift.
Já um að gera alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt 🙂
varð glöð að sjá þessa uppskrift í dag í Vikunni á hárgreiðslustofu. Ég borðaði svona salat með hamborgarhrygg fyrir u.þ.b. 30 árum síðan og varð svo hrifin því þetta átti svo vel saman. Að vísu voru ekki til sykurpúðar til í verslunum þá en salatið var mjöf gott þrátt fyrir það. Þetta ætla ég að prófa á jóladag og verður það örugglega vinsælt hjá yngra fólkinu.
En dásamlegt að heyra 🙂 Takk fyrir að segja mér frá <3 og eigðu yndislega jól
knús María