Stonemade borðbúnaður fullkomnun ófullkomleikans

höf: maria

-Samstarf-

Ég held það sé óhætt að segja að borbúnaðurinn frá Stonemade og nýja marmarabrettið mitt frá Hk Living sem fæst í Reykjavík Design sé mitt allra nýjasta uppáhald.

HK Living marmarabretti

Ég er með dökka viðarplötu á eyjunni í eldhúsinu mínu og mér fannst alltaf svo þungt að hafa meiri við þar ofan á og langaði svo í fallegt marmarabretti.

Þegar ég sá brettið frá HK Living í Reykjavík Design kolféll ég algjörlega fyrir því, en það var á þeim tíma sem ég var að taka stofuna í gegn og setja upp vegglistana.

Mig langaði svo að tengja saman stofu og eldhús og ákvað að færa stílinn í stofunni inn í eldhús og raða öðruvísi í hillurnar, sem og ofan á eyjuna.

Ég get með sanni sagt að bara með því að setja þetta eina fagra marmarabretti ofan á eyjuna þá var lúkkið á henni gjörbreytt. Það létti svo upp og allt varð meira svona töff.

Stonemade borðbúnaður

Ég fékk mér líka diska og skálar frá merkinu Stonemade sem einnig fæst í Reykjavík Design og guð hvað það er geggjað töff og fallegt.

Um er að ræða diska og skálar úr marmara eða kalksteini þar sem hver og einn gripur er handunninn og gróflega slípaður, sem gefur hrátt yfirbragð sem ég elska.

Æðar og ófullkomleiki steinsins fær að koma í ljós og njóta sín, eins konar fullkomnun ófullkomleikans, og um leið helsta vörumerki Stonemade sem er hannað af hinni austurrísku Katharina Mörz-Heissenberger. 

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_4485-683x1024.jpg

Efniviðurinn er sóttur til nágrennis Himalaya fjallanna og er unnin af fagmönnum á svæðinu. Stonemade og HK Living brettið er nú á 20 % afslætti út júní.

Vörurnar fást í þremur litbrigðum; hvítum, gráum og dumbrauðum sem tilvalið er að blanda saman en hægt er að skoða Stonemade vörurnar hér.

Margir gætu haldið að þar sem Stonemade er gert úr alvöru marmara eða kalksteini að um mjög viðkvæma vöru sé að ræða en svo er alls ekki.

Það sem ég gerði við mína diska og skálar var að olíubera allt og þvílíkur munur sem varð á. Æðarnar í steininum spruttu fram og allir litir komu í ljós.

Hér sést munurinn á gráa stellinu en ég er búin að olíubera helmingin af efsta disknum.

Auk þess þá verða aldrei neinir blettir eftir í diskunum né litur af sósum og slíkt, eftir að ég bar á þá. Þeir urðu líka svo mikið fallegri þó þeir hafi verið fallegir fyrir.

Ég set majónes sósur og alls kyns litaðan mat á hvítu marmaradiskana og það sér ekki á þeim. Diskana þvæ ég svo með heitu vatni og þeir eru sem nýjir eftir notkun.

Því mæli ég með að ef þið ætlið að fjárfesta í Stonemade að gera slíkt hið sama, en ég sýni inn á Instagram undir Highlights Stonemade muninn fyrir og eftir að ég olíubar.

Ég tók ógrynni af myndum af þessum fallegu vörum frá Stonemade og held ég leyfi þeim bara að tala sínu máli.

Dumbrauða stellið er gert úr mjúkum kalksteini en hann olíubar ég líka
Vinstri helmingur er ekki olíuborinn en hægri er ég búin að olíubera
This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_4497-683x1024.jpg

Stonemade fullkomnun ófullkomleikans

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_4387-683x1024.jpg
Líka fallegt í stofuna
Hvíta línan er úr marmara
This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_4407-683x1024.jpg
Grái liturinn dökknar mjög við að olíubera hann, en hann er gerður úr hörðum kalksteini
Tauservíetturnar og hnífapörin á myndunum fást einnig í Reykjavík Design

Vona þetta hafi veitt ykkur innblástur

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here