Bragðarefur sem bragð er af

höf: maria

-Ekki samstarf-

Ég elska bragðaref og hef gert síðan hann leit fyrst dagsins ljós í ísbúðum landsins.

Ég verð þó að viðurkenna að það að fara með fjölskylduna í ísbúðina er orðið ansi dýrt sport ef um stóra fjölskyldu er að ræða.

Því hef ég gert bragðarref heima í fjölda ára og hann bragðast alveg eins og úr ísbúðinni.

Hér þarf ekki að notast við neitt annað en hærivél eða blandara, eða matvinnsluvél, allt eftir því hvað er til á heimilinu, jafnvel bara skál og sleikju.

Ég geri hann alltaf annað hvort í blandara eða hrærivélinni og nota þá T-ið á hrærivélina.

Grautlinur bragðarrefur sem er farin að leka er þó eittthvað sem ég vil alls ekki sjá, þess vegna set ég alltaf tilbúin bragðarefinn aftur í ísboxið sem ísinn kom úr og set í frystir í alla vega 30 mínútur.

Ég geymi svo restina ef eitthvað verður eftir áfram í ísboxinu í frystinun.

Mig langar að þakka elsku Nínu vinkonu og samstarfskonu úr fluginu, fyrir að koma færandi hendi með fullt af Sanbó nammi handa mér sem ég notaði í þennan dýrðar bragaref.

Bragðarefur sem bragð er af

-Ekki samstarf- Ég elska bragðaref og hef gert síðan hann leit fyrst dagsins ljós í ísbúðum landsins. Ég verð þó að viðurkenna… Sætt Bragðarefur sem bragð er af European Prenta
Serves: 4-5 Prep Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 2 lítrar vanilluís (ég notaði Bónus ís en mér finnst hann ekki eins rjómakenndur og annar ís og því verður bragðarefurinn ferskari, nota líka oft Vesturbæjarísinn gamla ef ég vil hafa hann enn ferskari)
  • 250 gr fersk jarðaber (verða að vera fersk, alls ekki frosin)
  • 130 gr Sanbó piparkúlur
  • 130 gr Sanbo þristakúlur eða þristar 
  • 5 stk kókósbollur
  • Svo má setja allskyns annað sem hugurinn girnist en ég elska að setja lakkrískonfekt frá Sanbó, því hann helst mjúkur í köldum ísnum 

Aðferð

  1. Látið ísinn standa í smá stund upp á borði svo hann mýkist ögn
  2. Skerið jarðaberin smátt niður á meðan ásamt sælgætinu
  3. Setjið svo ísinn og jarðaberin saman í hrærivél eða hin tækin sem ég nefni að ofan og hafið í gangi í örsutta stund eða bara þar til jarðaberin eru rétt svo blönduð saman við
  4. Ef þið gerið í hrærivél með T-inu setjið þá næst nammið út í skálina og hrærið létt saman en ekki of mikið svo ísinn verði ekki of linur
  5. Ef þið notið matvinnsluvél eða blandara er betra að setja ísinn eftir að honum er blandað saman við jarðaberin í skál og hræra namminu saman við með sleikju
  6. Setjið svo bragðarefinn út í 2 lítra ísboxið og lokið boxinu
  7. Kælið í frystir í eins og 30-60 mínútur þá verður hann stífur og kaldur
  8. Geymið svo rest ef verður eftir í ísboxinu áfram í frystinum

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here