Dýrðleg sveppasósa með svörtum kantarellum

höf: maria

Samstarf-

Ég var svo heppin að fá að taka þátt í hátíðarblaði Moggans fyrir þessi jólin og var fengin til að gera jólamáltíð frá frá A-Ö.

Ég valdi að hafa hreindýralundir í aðalrétt með dýrindis meðlæti sem var hvert öðru betra. Sósan setti svo auðvitað punktinn yfir i-ið.

Rjómalöguð sveppasósa með svörtum kantarellum sem passar fullkomlega við hreindýrið. Sósan passar einnig með hvaða öðru kjöti sem er.

Nema þá mæli ég með að hafa annars konar kraft en er í þessari. Hér notaði ég villikraft frá Oscar en kraftana er hægt að fá með lambi, grænmeti, svíni o.fl.

Það eina sem þið þurfið að breyta er hverskonar kraft þið notið í stað villikraftsins, svína fyrir svín, lamb fyrir lamb o.þ.h. þið skiljið.

Dýrðleg sveppasósa með svörtum kantarellum

–Samstarf- Ég var svo heppin að fá að taka þátt í hátíðarblaði Moggans fyrir þessi jólin og var fengin til að gera… Meðlæti Dýrðleg sveppasósa með svörtum kantarellum European Prenta
Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 1 geiralaus marinn hvítlaukur
  • 150 gr ferskir kastaníusveppir
  • ½ box þurrkaðar svartar kantarellur frá Borde
  • 25 gr smör til steikingar á sveppum
  • ½ tsk salt fyrir sveppi
  • 50 gr smjör
  • 1 dl hveiti
  • 4 dl volgt vatn
  • 5 dl nýmjólk
  • 1,5 dl rjómi
  • ½ dl hreinn rjómaostur
  • 2 msk villikraftur
  • 1 sveppateningur
  • 1 pakki rauðvínssósa
  • 2 msk púðursykur
  • 1 msk rifsberjahlaup
  • 1 tsk villijurtir frá Pottagöldrum eða þurrkað timian frá Santa María
  • ½ tsk borðsalt
  • Svartur pipar
  • Sósulitur

Aðferð

  1. Vinnið þurrkuðu sveppina eftir leiðbeiningum á boxi og skerið svo smátt ásamt ferskum  sveppum.
  2. Bræðið 25 gr smjör á pönnu og merjið 1 geiralausan hvítlauk
  3. Steikjið bæði þurrkaða og ferska sveppi upp úr smjörinu og saltið með ½ tsk af borðsalti þar til þeir eru vel brúnir
  4. Setjið þá marða hvítlaukinn út á og slökkvið undir pönnuni. Hafið áfram á heitri hellunni og hrærið vel saman og leggið svo hliðar
  5. Bræðið 50 gr smjör í potti og setjið svo hveitið út á og hrærið vel þar til verður að smjörbollu, hrærið í 1 mínútu og hellið volgu vatninu smátt og smátt út á meðan  hrært er vel í á meðan þykknar í glansandi silkimjúkan jafning
  6. Bætið næst púðursykri, rifsberjahlaupi, villikrafti, sveppateningum, 1/2 tsk borðsalti, pipar, villijurtum  og duftinu úr rauðvínssúpunni út á og hrærið öllu vel saman þar til teningar eru full leystir upp
  7. Setjið þá mjólk, rjóma  og rjómaost út á og hrærið vel saman og setjið sósulit út í þannig sósan verði fallega brún
  8. Setjið svo alla sveppi út í sósuna og hrærið vel þar til suða kemur upp og lækkið þá undir
  9. Leyfið sósunni að sjóða í lágmark 30 mínútur eða lengur
  10. Smakkið til og saltið og piprið ef þarf

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here