-Samstarf-
Hlutirnir þurfa oft ekki að vera flóknir þó þeir séu góðir.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_3861-683x1024.jpg)
Hér erum við með afar klassíska ítalska uppskrift sem er mikið notuð þar í landi.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_3878-683x1024.jpg)
Aglio E Olio þýðir í raun bara spagettí með hvítlauk og olíu, og það er akkurat það sem þessi réttur er.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_3897-683x1024.jpg)
Það eru örfá innihaldsefni í honum og tekur ekki nema um 15 mínútur að gera hann.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_3859-683x1024.jpg)
Ég hvet ykkur til að prófa ef þið eruð miklir hvítlauksaðdáendur.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_3863-683x1024.jpg)
Mér finnst gott að toppa spagettíið með Parmesan og bera fram með heitu baguette brauði og fersku salati. Aglio E Olio er líka dásamlega gott bara eitt og sér.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_3894-683x1024.jpg)
Hér notaði ég De Cecco pasta sem er mitt uppáhald í þurrkuðu pasta, en það er alveg hágæða að mínu mati.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_3889-683x1024.jpg)
![IMG_3875](https://paz.is/wp-content/uploads/2022/03/IMG_3875-585x585.jpg)
Hráefni
- 1 pakki eða 500 gr De cecco spagettí
- 1 dl extra virgin ólífuolía, ég notaði Filippo Berio
- 3-4 hvítlauksrif, ég notaði 4 stk
- 1/2 tsk fínt borðsalt (til að nota í olíuna, en það þarf síðan meira til að salta spagettívatnið)
- 1 tsk þurrkuð steinselja
Aðferð
- Setjið eins og 4-6 l af vatni í pott og saltið það vel að það líkist sjóvatni
- Setjið svo spagettíið út í pottinn þegar vatnið byrjar að sjóða og sjóðið í 10 mín al dente eða 12 mín ef þið viljið það alveg mjúkt
- Á meðan er olían gerð með því að merja hvítlauksrifinn og setja þau saman við olíuna í lítinn pott
- Setjið 1/2 tsk af fínu borðsalti út í og þurrkaða steinselju
- Hitið yfir meðalhita í eins og 5 mínútur eða þar til hvítlaukurinn er fallega gylltur, hann má alls ekki brenna eða dökkna mikið
- Þegar pastað er til hellið þá af því vatninu og setjið í skál, hellið svo heitri olíunni yfir og hrærið vel saman
- Gott er að nota parmesan ost til að raspa ofan á eða jafnvel chiliflögur. Mér finnst gott að bera hann fram með heitu baguette og jafnvel fersku salati
Buon appetito
María