Mexíkóskál með Quinola, kjúkling og ferskri dressingu

höf: maria

-Samstarf-

Hér er afar góð og fersk mexíkóskál sem er stútfull af vítamínum, hollri fitu og próteini og svo svo bragðgóð líka.

Hér er svo sannarlega um hollan skyndibita að ræða en þessa skál tekur enga stund að gera. Þrátt fyrir quinoa og kjúkling sem þarf að elda með dásamlegum kryddlegi.

Kryddlögurinn tekur jafnlanga stund og að hræra saman kokteilsósu og svo er honum penslað beint á niðursneiddar kjúklingabringur og í ofn í 20 mínútur.

Á meðan er tilvalið að skera niður allt sem á að fara í skálina og útbúa olíudressinguna sem er í senn fersk, spæsí og sæt og dýrðlega góð.

Quinoa krefst langrar eldunar og því finnst mér geggjað að geta notað forsoðið Quinoa frá merkinu Quinola sem þarf bara að hita upp í 2 mínútur og málið dautt.

Hér notaði ég quinola með Spicy Mexican en það rífur smá í án þess að vera of sterkt.

Dressingin setur svo alveg punktinn yfir i-ið en ég set alltaf vel af henni og set svo sýrðan rjóma með habanero ofan á þegar öllu hefur verið hrært saman.

Quinola er til í fjórum bragðtegundum og fæst í Krónunni, Bónus, Nettó, Hagkaup, Fjarðarkaupum og Samkaupum 

En umbúðirnar eru búnar að fá smá uppliftingu og eru orðnar enn smartari og betri en áður.

Mexíkóskál með Quinola, kjúkling og ferskri dressingu

-Samstarf- Hér er afar góð og fersk mexíkóskál sem er stútfull af vítamínum, hollri fitu og próteini og svo svo bragðgóð líka.… Hollusta Mexíkóskál með Quinola, kjúkling og ferskri dressingu European Prenta
Serves: 2-3 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Í skálina fer 

  • 1/2 lítill rauðlaukur smátt skorinn 
  • 1/2 dós maísbaunir 
  • 1/2 box piccolo tómatar eða aðrir smátómatar skornir í tvennt 
  • 1-2 avókadó skorin í þunnar sneiðar 
  • 2 vorlaukar smátt skornir og líka þetta græna efst með 
  • 1 rauður chilialdin fræhreinsaður (má sleppa)
  • 1/2-1 lítil dós ananas og ekki henda safanum 
  • 1/2 poki quinola Spicy Mexican 
  • 1/2 dós svartar baunir 
  • 1/2 ramiro paprika smátt skorin 
  • kál að eigin vali 
  • Sýrður rjómi með habanero
  • 2 kjúklingabringur  

Mexíkó Kryddlögur á bringurnar 

  • 1/2 msk laukduft (onion powder)
  • 1/2 msk hvítlauksduft (garlic powder alls ekki garlic salt)
  • 2 msk sojasósa 
  • 2 msk tómatssósa (ketchup) 
  • Raspaður börkur af 1 stk lime 
  • 1 tsk lime safi 
  • 1 tsk hunang 
  • salt og pipar 

Salatdressing út á skálina

  • Safi úr lítillri ananasdós 
  • safi úr 1/2 lime 
  • 2 msk olífuolía 
  • 5-10 dropar tabasco sósa 
  • 1 msk hlynsíróp eða annað síróp 
  • salt og pipar 

 

Aðferð

  1. Byrjið á að hita ofn á 200°C og gerið kryddlögin á bringurnarmeð því að hræra vel saman innihaldsefnum
  2. Skerið bringur í þunnar sneiðar 
  3. Leggjið svo bringubitana á eldfast móti og penslið með kryddleginum báðum megin og saltið ögn og piprið 
  4. Stingið í heitan ofninn í 20 mínútur og skerið allt grænmeti niður í skálina á meðan og gerið salatdressinguna 
  5. Gott er að setja öll innihaldsefni úr dressingunni í hristiglas og hrista hana vel saman smakkið til og saltið eftir smekk ég vil hana hana frekar salta 
  6. Þegar 5 mínútur eru eftir af eldunartíma kjúklingsins er gott að stinga maisbaunum, quinola og svörtum baunum í örbylgjuofn eða í pott og hita upp en ég vil hafa þessi hráefni heit á móti hinu köldu 
  7. Raðið svo öllu í skálina og kjúklingabitunum yfir og berið fram með dressingu og sýrðum rjóma 
  8. Það er líka gott að nota nachos með þessu eða setja inn í vefju þess vegna 

Andele andele verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here