Heimagerð skyrskál

höf: maria

-Samstarf-

Ég er búin að vera alveg húkkt á skyrskálum í sumar en mér finnst þær bara svo svalandi og góðar. Hins vegar finnst mér þær ansi dýrar.

Þess vegna ákvað ég að gera mína eigin útgáfu heima en hafði skyrskálarnar frá Ísey skyr sem fyrirmynd, þó þær séu ekki nákvæmlega eins samt.

Með hráefnunum frá Muna er ekkert mál að eiga til í holla skyrskál sem er í senn lífrænt ræktuð og ekki eins vond við budduna.

Ég ákvað að gera tvær sortir af skyrskál eða þær allra vinsælustu, 1001 nótt og hindberja skál…….eins og ég segi þá er þetta mín útgáfa og því ekki alveg nákvæmlega eins.

Truflað góðar engu að síður og þið munuð ekki trúa hversu auðvelt er að gera svona sjálfur. Ég geymi alltaf skálina sjálfa þegar ég kaupi mér skyrskál og skola til að geta gert í hana heima hahaha.

En það má líka bara gera svona í hvaða skál sem þið eigið til heima eða í krukku jafnvel. Svo getið þið ráðið líka hvaða skyr þið viljið hafa í botninn.

Eins getið þið vel leikið ykkur með toppinn og sett hvaða gúmmelaði sem er ofan á eða jafnvel svissað toppnum á 1001 skálinni og hindberjaskálinni.

Möguleikarnir eru endalausir og ykkar er auðvitað valið. Mér finnst 1001 skálin betri þó þær séu báðar mjög góðar, hindberja er ögn súrari ef þú vilt ekki dísætt.

Heimagerð skyrskál

-Samstarf- Ég er búin að vera alveg húkkt á skyrskálum í sumar en mér finnst þær bara svo svalandi og góðar. Hins… Hollusta Heimagerð skyrskál European Prenta
Serves: 1 skál Prep Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

1001 nótt skál 

  • Ég nota eldfjalla skyr í botninn 

Millilag:

  • 2 dl frosið mango
  • 2 dl frosinn ananas 
  • 1 frosinn banana 
  • 1 rífleg msk MUNA hnetusmjör 
  • 1/2-1 dl MUNA möndlur 
  • 1 dl smátt skornar MUNA döðlur (c.a 10 döðlur)
  • 2,5 dl möndlumjólk 

Toppur :

  • MUNA Haframúslí með eplum og kanil
  • Fersk jarðaber
  • Banani 
  • Smátt skorið hnetustykki frá MUNA 
  • Muna hnetusmjör 
  • Smátt skorinn ananas úr dós (má sleppa)

Hindberjaskál 

  • Ég notaði banana og jarðaberjaskyr í botninn 

Millilag:

  • 1,5 dl jarðaberja og bananaskyr 
  • 1/2 dl frosin hindber
  • 1 frosinn banani 
  • 1-2 dl frosin jarðaber (ég frysti fersk jarðaber smátt skorin)
  • 1 msk MUNA agave síróp 
  • 1 msk MUNA hnetusmjör 
  • 1/2 dl möndlumjólk

Toppur:

  • MUNA speltmusli með trönuberjum 
  • Fersk jarðaber 
  • Banani 
  • Smátt skornar MUNA döðlur 
  • Smátt skorinn MUNA kókósbiti 
  • MUNA Hnetusmjör 

 

Aðferð

Aðferð er sú sama með báðar skálarnar 

  1. Setjið skyr í botn á skálinni 
  2. Setjið svo allt sem á að fara í millilag í blandara og blandið vel en ekki of lengi því það á að vera þykkt og frosið. Best að sjá að allt er blandað saman og orðið að mauk og slökkva þá 
  3. Setjið svo millilagið ofan á skyrið og látið það ná alveg upp að brún 
  4. Stráið svo musli yfir 
  5. Skerið svo niður banana, fersk jarðaber, MUNA stykki og döðlur og setjið ofan á ásamt hnetusmjöri 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here