Maríneraður steiktur fiskur með bræddu hvítlaukssmjöri

höf: maria

-Samstarf-

Þessi fiskréttur er afar góður ef þið eruð að leita eftir tilbreytingu frá hefðbundnum steiktum fiski.

Rétturinn er í senn bragðmikill og auðveldur að gera. En galdurinn hér er að marínera fiskinn í Caj P hvítlauks grillolíu.

Því lengur því betra, en ég hef hann stundum alveg yfir nótt eða frá morgni til kvöldmats í maríneringunni. Best er að leyfa fiskinum að marínerast allavega í 2-4 tíma.

Með því móti fær maður sem mest bragð inn í fiskinn og því er eftirleikurinn auðveldur.

Bara að velta honum upp úr maizena mjöli eða kartöflumjöli og steikja í góðri olíu. Svo er brætt hvítlaukssmjörið það sem setur punktinn yfir i-ið.

Mér finnst best að nota ýsu eða þorskhnakka en hvaða hvíti fiskur sem er kemur til greina.

Auðvelt og gott og mæli ég með að þú prófir.

Maríneraður steiktur fiskur með bræddu hvítlaukssmjöri

-Samstarf- Þessi fiskréttur er afar góður ef þið eruð að leita eftir tilbreytingu frá hefðbundnum steiktum fiski. Rétturinn er í senn bragðmikill… Matur Maríneraður steiktur fiskur með bræddu hvítlaukssmjöri European Prenta
Serves: 4 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Marínering 

  • 1-2 dl Caj P BBQ olía með hvítlauk 
  • 1 msk sojasósa 
  • 3-4 marin hvítlauksrif 
  • 1 tsk sítrónusafi 
  • 1 msk hunang 
  • Klípa af grófu salti 
  • pipar
  • smá chiliflögur (val ef þið viljið hafa fiskinn sterkann) 
  • 500 gr hvítur fiskur eins og ýsa eða þorskur en ég notaði þorskhnakka 

Bráðið hvítlaukssmjör 

  • 80 gr smjör 
  • 3 marin hvítlauksrif 
  • 1/2 msk nýkreystur sítrónusafi 
  • 2 tsk þurrkuð steinselja 

Annað

  • 1 dl maizena mjöl eða kartöflumjöl og meira ef þarf 
  • 4 msk góð matarolía en það er líka gott að nota 3 msk matarolíu og 1 msk sesamolíu 

Aðferð

  1. Setjið Caj p grillolíuna í grunna skál og merjið hvítlauksrifin út í (hristið Caj P olíuna vel áður en sett er í skálina)
  2. Blandið svo restinni af innihaldsefnum úr maríneringunni saman við og hrærið vel saman 
  3. Leggjið fiskinn á eldhúspappír til að ná sem mestum raka úr honum og skerið hann svo í langa mjóa bita 
  4. Setjið fiskbitana út í maríneringuna helst í 2-4 klst í ísskáp,  best ef hægt er yfir nótt eða frá morgni að kvöldmatartíma 
  5. Þegar steikja á fiskinn setjið þá maizena eða kartöflumjöl á matardisk 
  6. Hitið svo olíu á pönnu og veltið einum fiskbita í einu upp úr mjölinu (passa að láta sem mest af maríneringunni leka af fiskinum) og setjið svo beint út í heita olíuna 
  7. Steikjið fiskinn þar til hann hefur fengið á sig fallegan appelsínugylltan lit og setjið svo á disk með eldhúspappír á til að umfram olía fari í pappann 
  8. Meðan fiskurin er steiktur er gott að gera hvítlaukssmjörið til á meðan
  9. Setjið smjörið í pott og bræðið en ekki sjóða, slökkvið undir þegar smjörið hefur bráðnað
  10. Merjið næst hvítlauksrifin út í smjörið og setjið restina af hráefnum saman við og hrærið vel saman, setjið í skál og leggjið til hliðar 
  11. Þegar fiskurinn er til og kominn á disk er best að hella hvítlaukssmjörinu yfir hann heitann og bera afganginn af smjörinu fram með réttinum 
  12. Mér finnst best að hafa ofnbakað smælki velt upp úr olíu og salti með honum og hella hvítlaukssmjörinu yfir þær líka þegar þær eru til

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here