Pipirrana kalt pastasalat frá Spáni

höf: maria

-Samstarf-

Kalt pastasalat er eitthvað sem margir mættu gera mikið oftar, enda er það ótrúlega sniðugt til að hafa með í nesti eða til að eiga í ísskáp þegar hungur seðjar að og manni vantar eitthvað snöggt.

Það góða við kalt pastasalat er að það geymist vel í ísskáp og því hægt að gera stóra skammta af því til að eiga í nokkra daga.

Fyrir mörgum árum út á Spáni var mér boðið í Alhambrahöllina og heim í mat til frænku minnar á eftir. Þar fékk ég svona dásamlegt kalt pastasalat með túnfisk og fleira gúmmelaði sem ég alveg féll fyrir.

Ég veit að það eru ekki allir fyrir túnfisk og er maðurinn minn þar á meðal, en samt borðaði hann þetta salat með bestu list og hans orð um það voru, vá hvað þetta kemur á óvart !

Í þetta sinn notaði ég pastaskrúfur frá De Cecco en ástæðan fyrir því vali er að De Cecco pastað klístrast akkurat ekkert né límist saman þegar það kólnar.

Þetta salat tekur enga stund að gera og er afar einfalt, auk þess þarf ekki óteljandi dýr hráefni svo þetta er vænt við budduna án þess að bitna á bragðinu.

Pipirrana kalt pastasalat frá Spáni

-Samstarf- Kalt pastasalat er eitthvað sem margir mættu gera mikið oftar, enda er það ótrúlega sniðugt til að hafa með í nesti… Aðalréttir Pipirrana kalt pastasalat frá Spáni European Prenta
Serves: 6 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 300 gr De Cecco ósoðnar pastaskrúfur 
  • 1-2 dósir túnfiskur (ég notaði eina en hefði alveg mátt vera meira af túnfisk)
  • Rúmlega 1/2 dós gular maísbaunir
  • 1 gult epli 
  • 1/2 græn paprika 
  • 1/2 appelsínugul eða rauð paprika 
  • 10-12 stk smátómata 
  • 6-8 lengjur af Surrimi (má sleppa ef ykkur finnst það vont en gerir mjög gott bragð)
  • 1 bolli svartar ólífur án steins 
  • 1/2 krukka fetaostur eða 1/2 fetakubbur 
  • 1/2 dl ólífuolía extra virgin 
  • vel af salti og pipar 
  • Ferskt timian til að sáldra yfir en má alveg sleppa (athuga ekki nota þurrkað) 

Aðferð

  1. Byrjið á að setja vatn í pott og salta mjög vel, svo verði nánast eins og sjóvatn
  2. Þegar vatnið byrjar að sjóða setjið þá pastað út í og stillið á 9 mínútur suðu 
  3. Skerið næst paprikur mjög smátt og tómatana í tvennt, surrimi í litla bita og eplið í litla ferninga 
  4. Setjið í stóra skál skorið grænmetið, gular baunir, epli, túnfisk, surrimi, heilar ólífur og fetaost án olíunnar
  5. Hrærið vel saman 
  6. Þegar pastað er soðið leyfið þá aðeins að rjúka úr því en ekki skola það neitt 
  7. Setjið það svo út á allt í skálinni, hellið 1/2 dl extra virgin ólífuolíu út á og saltið vel og piprið
  8. Hrærið svo öllu vel saman. Hægt er að bera strax fram eða setja í kæli og taka með í nesti. 

Verði ykkur að góðu

Megið endilega fylgjast með mér á Instagram

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here