Cookucci með saltri karamellu súkkulaði og möndlum, það besta frá Ítalíu og Ameríku

höf: maria

-Samstarf-

Hér er á ferðinni ein stórhættuleg uppskrift. Þetta þótti svo gott að ég hef sjaldan heyrt jafnmikil namm og umm hjá fólkinu mínu sem fékk að smakka.

Ef þið hafið ekki hugmynd um hvað cookucci er þá er það bara ekkert skrítið því þið hafið örugglega aldrei heyrt á þetta minnst áður, enda bjó ég þetta nafn til sjálf sem og uppskriftina.

Það vita eflaust allir hvað amerískar mjúkar smákökur eru eða cookies, og margir kannast við ítölsku kexkökurnar sem eru skornar á hlið með möndlunum inní sem kallast cantucci og stundum Biscotti.

Já það er akkurat það sem þessi dýrðlegheit er, blanda af cookie og cantucci og því fannst mér nafnið cookucci (lesist Kúkútsí) passa afar vel á þetta nýja barn mitt sem ég er afar stolt af.

Þegar það besta frá Ítalíu og Ameríku mætist verða töfrar, og það er það sem gerðist hér. Sölt klístruð karamellan, dísætt rjómasúkkulaði, hvítt súkkulaði og rjómakenndar möndlur sem gefa bit undir tönn.

Það sem meira er, er að þetta er svo fáranlega auðvelt að gera og tekur enga stund. Ef þú átt von á gesti er tilvalið að henda í svona cookucci.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_5153-727x1024.jpg

Aðalstjarnan hér eru söltu karamellurnar frá Walkers. Góðar einar og sér sem og í bakstur en þær t.d voru aðalstjarnan í snickerstertunni góðu sem sló svo rækilega í gegn og þið getið fundið hér.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_5113-668x1024.jpg

Þessi uppskrift gefur af sér tvö svona gullfallega gyllt og klísturmjúk cookucci. Það er sniðugt að frysta og eiga til í frysti ef gesti ber að garði en takið bara út eins og 10 mín fyrir.

Ég myndi líka klárlega bjóða upp á þetta í afmælum eða saumakúbbum eða við önnur skemmtileg tilefni eða bara með góðum kaffibolla eða ískaldri mjólk fyrir börnin.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_5137-1024x1001.jpg

Cookucci með saltri karamellu súkkulaði og möndlum, það besta frá Ítalíu og Ameríku

-Samstarf- Hér er á ferðinni ein stórhættuleg uppskrift. Þetta þótti svo gott að ég hef sjaldan heyrt jafnmikil namm og umm hjá… Bakstur Cookucci með saltri karamellu súkkulaði og möndlum, það besta frá Ítalíu og Ameríku European Prenta
Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: Allt of margar calories Mjög mjög mikið fat

Hráefni

  • 250 gr smjör mjúkt 
  • 1/2 dl bökunarsíróp 
  • 200 gr sykur 
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 300 gr hveiti 
  • 1 poki Walkers saltkaramellur 
  • 35 gr rjómasúkkulaði dropar 
  • 35 gr hvítir súkkulaðidropar
  • 40 gr möndlur heilar án hýðis (hægt að kaupa þær þannig, ef þær finnast ekki þá nota með hýði) 

Aðferð

  1. Hitið ofn á 200 C° blástur
  2. Hafið smjörið mjög mjúkt, ef þið hafið gleymt að mýkja má mýkja það í örbylgju þó án þess að það bráðni
  3. Þeytið nú saman smjöri, sírópi og sykri þar til það er létt og ljóst 
  4. Bætið þá saman við hveitinu og matarsódanum og þeytið aftur saman þar til vel blandað 
  5. Skerið karamellur niður í 4 bita hverja karamellu og bætið út í deigið ásamt súkkulaðidropum og heilum möndlunum 
  6. Skiptið nú deiginu í tvennt (c.a 500 gr hver helmingur ef þið viljið vigta) og rúllið hverjum helming upp í rúllu eða eins og þykka bjúgu og látið það þannig á bökunaplötu með smjörpappa
  7. Það mun leka út og verða svona flatt og þannig á það að verða 
  8. Bakið í 18 mínútur eða þar til gyllinbrúnt og fallegt 
  9. Athugið að fyrst meðan það er heitt er þetta lint eins og það sé hrátt en við kólnun stífnar það og verður stökkt að utan og mjúkt að innan
  10. Þegar það hefur kólnað skerið þá í fingurmjóar sneiðar og berið fram með ískaldri mjólk eða góðu kaffi 

Punktar

Þetta er mjög einfalt að gera en passið að rúlla deiginu upp í eins og þykka rúllu/bjúgu áður en það fer í ofninn og setja það þannig inn. Það á alls ekki að fara flatt eins og það lítur út inn í ofninn því það lekur út og verður flatt við bakstur. Það má frysta afgang og eiga til í frysti þegar gesti ber að garði en gott er að taka þá út eins og 10 mín áður.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_5133-734x1024.jpg

Verði ykkur að góðu

Endilega fylgist með á instagram

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here