Andalæri á vöfflu með hrásalati og hoisin sósu

höf: maria

-Ekki samstarf-

Ég keypti fyrir einhverju síðan andalæri í dós sem ég verð að viðurkenna að mér fannst fyrst hljóma mjög skrítið.

Var ekki alveg að kaupa það að það gæti verið gott, en var búin að sjá þetta í verslunum víða og svo var fólk mikið að hæla þessu.

Ég held ég hafi geymt dósina í 2 mánuði áður en ég fékk mig til að prófa. Ég hafði nýlega verið á veitingahúsi þar sem ég fékk andalæri á vöfflu og gat ekki hætt að hugsa um þann rétt.

Ég ákvað því að gera minn eigin rétt af andalærum á vöfflu og má segja að rétturinn sé innblásinn af þremur andaréttum sem ég hef prófað með dassi af mínu hugmyndaflugi.

Útkoman var virkilega góð og vá hvað lærin í dósinni komu mér á óvart !!! Bragðið, áferðin og bara allt við þau var gott, og var kjötið svo meirt að það datt af beinunum.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_6352-683x1024.jpg

Sem var fullkomið fyrir þennan rétt því ég vildi hafa beinlaust kjötið ofan á vöfflunni svo þetta var fullkomið.

Ég mæli svo sannarlega með að þú prófir þetta enda var þetta með eindæmum gott, bæði bragðmikið og ferskt.

Andalæri á vöfflu með hrásalati og hoisin sósu

-Ekki samstarf- Ég keypti fyrir einhverju síðan andalæri í dós sem ég verð að viðurkenna að mér fannst fyrst hljóma mjög skrítið.… Aðalréttir Andalæri á vöfflu með hrásalati og hoisin sósu European Prenta
Serves: 4-5 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Mér finnst best að gera þetta í þessari röð; 1. Vöffludeig, 2. Öndina í ofninn, 3. Hrásalat meðan öndinn er í ofninum, 4. Baka vöfflurnar þegar 5 mín eru eftir af öndinni í ofninum. 

Vöffludeig 

  • 250 gr hveiti
  • 50 gr grófur hrásykur frá Dan sukker (mikilvægt að nota þennan til að gera þær stökkar) 
  • 150 gr bráðið smjör 
  • 10-12 gr þurrger 
  • 1 egg 
  • 1/2 tsk fínt borðsalt 
  • 210 gr volg mjólk 
  • Meiri hrásykur frá Dan sukker til að sáldra yfir deigið í járninu eða jafnvel perlusykur ef þið eigið  (útskýri seinna) 

Öndin 

  • 1 dós af andalærum 
  • Salt og pipar 
  • Tilbúin Hoisin sósa úr búð 
  • 1/2 dl hlynsíróp 

Hrásalatið

  • 1/4 partur af hvítkálshaus 
  • 3 meðalstórar gulrætur 
  • 1 gult epli 
  • 1 dl majónes en ég nota alltaf frá Heinz í svona sósur en það er bara laaaanbest og svo silkimjúkt 
  • 1 stk þroskað avókadó eða um 120 gr 
  • 2 marin hvítlauksrif 
  • 1 msk nýkreystur appelsínusafi
  • salt og pipar 

Klettasalat til að setja svo ofan á vöffluna 

 

Aðferð

Vöffludeig 

  1. Setjið öll þurrefni saman í skál og hrærið með skeið eða sleif (setja líka þurrgerið hér með) 
  2. Bætið næst við volgri mjólkinni og egginu
  3. Hrærið vel saman með sleif og setjið svo bráðið smjörið út í og hrærið þar til það er komið vel inn í deigið, en deigið er ekki eins og hefðbundið fljótandi vöffludeig heldur meira eins og þunnt brauðdeig og þannig á það að vera
  4. Breiðið stykki yfir skálina og setjið á volgan stað og leyfið deiginu að hefast meðan önd og hrásalat er útbúið 

Öndin 

  1. Hitið ofninn á 190-200 °C undir og yfirhita án blásturs 
  2. Gott er að láta heitt vatn renna í smátíma á lokaða dósina áður en lærin eru tekin úr henni
  3. Opnið dósina varlega og ef þið hafið látið heitt vatn renna á dósina ætti fitan að vera orðin fljótandi og þá er gott að taka lærin bara beint upp úr og setja í eldfast mót, ef fitan er enn þykk og óbráðin þá skola ég ögn lærin undir volgu vatni til að ná sem mest af fitunni af þeim áður en ég set þau í mótið
  4. Saltið og piprið létt og pennslið létt með Hoisin sósu
  5. Bakið í ofninum í 25-30 mín en lærin er fullelduð fyrir svo hér er í raun bara verið að hita þau upp og ná fram stökkri húð, gott er að hafa þau á grilli síðustu 2-3 mínúturnar 

Hrásalatið

  1. Setjið ávókado, majónes og appelsínusafa ásamt hvítlauksrifum saman í blandara og maukið þar til verður að kekkjalausri silkimjúkri sósu 
  2. Skerið hvítkálið í örþunnar ræmur, mér finnst best að skera það með hníf en það má líka rífa það í rifjárni 
  3. Flysjið gulrætur og skrælið eplið og skerið bæði gulrætur og epli í þunnar lengjur með flysjara
  4. Setjið næst majónessósuna í skál og grænmetið ásamt eplinu út í og hrærið vel saman og saltið ögn og piprið,  kælið meðan andalærin eru í ofninum 

Samsetning 

  1. Þegar fimm mínútur eru eftir af lærunum í ofnum bakið þá  vöfflurnar í belgísku vöfflujárni (stráið smá perlusykri eða hrásykri yfir hverja vöfflu áður en þið lokið járninu) og  passið að baka þær nógu lengi svo þær verði stökkar og setjið á grind 
  2. Hrærið 1,5 dl af Hoisinsósu saman við 0,5 dl af hlynsírópi, hrærið vel saman og hitið í örbylgjuofni í 30-40 sekúndur 
  3. Rífið andalærin niður með gaffli 
  4. Setjið svo á heita vöffluna hrásalat neðst, andalæri ofan á og dreifið svo heitri Hoisin/hlynsíróp sósunni yfir lærin og toppið með klettasalati 

Þetta er mun auðveldara að gera en sýnist ég lofa !!

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here