Cacio a pepe með smá twisti eða spagettí með piparpecorino smjörbollu

höf: maria

-samstarf-

Cacio a pepe er rammítalskur spagettíréttur sem er venjulega gerður með olíu, pecorino osti og pipar.

Þessa útgáfu eða svipaðri þessari sá ég hins vegar á Tik Tok og fannst hún bara meira djúsí og ákvað að gera mína eigin útgáfu af henni.

Ég veit að grjótharðir ítalir myndu kannski móðgast við þessa uppskrift en hey hver segir að maður megi ekki leika sér í eldhúsinu.

Ég allavega var mjög ánægð með útkomuna og hinir heimilismennirnir líka, en mér finnst smjörið alveg gera rosa mikið fyrir bragðið.

Þessi réttur er afar einfaldur og tekur enga stund að gera. Ég mæli með því að hafa hvítlauksbrauð og ferskt salat með honum til að fá smá ferskleika með smjörbragðinu.

Ég mæli með að þið prófið en þessi er alveg svona ekta korter í kvöldmat réttur sem maður bara hendir í á mettíma.

.

-samstarf- Cacio a pepe er rammítalskur spagettíréttur sem er venjulega gerður með olíu, pecorino osti og pipar. Þessa útgáfu eða svipaðri þessari… Matur Cacio a pepe með smá twisti eða spagettí með piparpecorino smjörbollu European Prenta
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 300 gr spagettí frá De Cecco finnst mér best 
  • 150 gr mjúkt smjör 
  • 100 gr rifinn pecorino ostur 
  • fullt af nýmöluðum svörtum pipar 

Aðferð

  1. Sjóðið spagettí eftir leiðbeiningum á pakka en munið að hafa vatnið vel salt, nánast eins og sjóvatn
  2. Rífið niður pecorino ostinn í rifjárni og hrærið út í mjúkt smjörið ásamt fullt af svörtum pipar, eftir smekk 
  3. Setjið smjörið í skál og setjið á borðið ásamt sjóðandi heitu spagettí
  4. Best er að bera fram spagettíið sjóðandi heitt og fá sér svo góða slettu af piparostasmjörinu út á og láta það bráðna yfir spagettíið, setja svo smá auka af ólifuolíu og enn meiri rifinn pecorino ost yfir 
  5. Ég mæli með því að hafa hvítlauksbrauð og ferskt salat með til að fá smá ferskleika með smjörbragðinu

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here