Heit epli í kókós og hafrahjúp

höf: maria

-Samstarf-

Ég elska allt sem er sætt með höfrum, hafrakex, hafraklatta, hafragraut með kanilsykri og ég gæti lengið talið áfram.

Hér er á ferðinni dásamlegheit af heitum eplum umlukin kókos og hafrahjúp, mætti kannski líka alveg kalla þetta eplaböku.

Málið er samt að þetta er meira eins og kexmylsna sem umlykur heit eplin frekar en bökudeig, heitt með ís er þetta fullkomið.

Hér ráðið þið alveg hvernig lit af eplum þið notið, ég notaði samt gul epli með möttu hýði en mér finnst þau langbest, rauð ganga vel líka.

Þetta er ekki þesslags baka sem þið skerið í sneiðar, hún er meira eins og heitur brauðréttur sem maður skefur upp á diskinn með skeið og allt er frekar messý.

Ég elska þannig gúmmelaði.

Ekki skemmir fyrir að þessi eplaréttur er í hollari kantinum en í hann notaði ég lífræn ræktuð hráefni frá MUNA sem áður var og hét Himnesk Hollusta.

Þar sem þetta er afar einfalt að útbúa er ekkert mál að skella í eitt svona fat rétt fyrir góða kvöldmáltíð sem dæmi og hafa í ofninum meðan borðað er.

Og hafa svo beint á eftir kvöldmatnum í eftirrétt. Bara tillaga en auðvitað má hafa þetta bara með kaffinu og þegar gesti ber að garði.

Heit epli í kókós og hafrahjúp

-Samstarf- Ég elska allt sem er sætt með höfrum, hafrakex, hafraklatta, hafragraut með kanilsykri og ég gæti lengið talið áfram. Hér er… Hollusta Heit epli í kókós og hafrahjúp European Prenta
Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 200 gr fínmalað spelt frá MUNA 
  • 50 gr möndlur frá MUNA 
  • 50 gr grófar hafraflögur frá MUNA 
  • 200 gr lyktar og bragðlaus kókósolía frá MUNA 
  • 150 gr hrásykur frá MUNA 
  • 50 gr kókósmjöl frá MUNA 
  • 1-2 stór gul epli með mattri húð eða rauð 
  • 1/2 tsk fínt borðsalt 
  • 1 tsk vanilludropar 
  • 1 tsk sítrónusafi (má sleppa)
  • 1 tsk kanill (má sleppa) 
  • 5 tsk hrásykur frá MUNA til að dreyfa yfir eplin og ofan á 

Aðferð

  1. Byrjið á að mala möndlur og haframjöl létt saman í blandara (ekki of mikið samt)
  2. Setjið í hrærivélarskál með hrærara á, ekki nota þeytaran né hnoðaran 
  3. Setjið næst spelt út í ásamt sykri, salti og kókós og hrærið saman með skeið 
  4. Setjið svo olíuna ásamt vanilludropum út í (ath olían á að vera við stofuhita, ekki bræða)
  5. Setjið í hrærivélina og hrærið þar til allt er vel blandað saman og orðið eins og deigkúla 
  6. Takið nú helmingin af deiginu og þjappið vel ofan í eldfast mót 
  7. Skrælið eplin og skerið í þunnar sneiðar og raðið ofan á deigið í eldfasta mótinu 
  8. Hellið næst sítrónusafanum yfir eplin og stráið 3 tsk af hrásykri yfir og kanil 
  9. Takið svo hinn helmingin af deiginu og setjið á milli tveggja arka af bökunarpappír 
  10. Fletjið það út með kökukefli og takið efri pappírinn af og hvolfið svo deiginu yfir eplin með neðri pappanum fastan á 
  11. Fjarlægið pappírinn varlega af en þið gætið þurft að skafa ögn með hníf til að ná alveg af
  12. Stráið svo 2 tsk af hrásykri yfir allt og bakið í ofni á 180 °C blæstri í 40-50 mínútur 
  13. Látið standa eins og í 10-15 mínútur áður en þið berið fram en gott er að hafa vanilluís með eða þeyttan rjóma 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here