Grillaður marineraður lax í hamborgarabrauði með fetaosta-hvítlauksjógúrtsósu

höf: maria

-Samstarf-

Nú er grilltíminn að hefjast með hækkandi sól. Ég elska grillmat, en stundum getur það orðið of mikið af kjöti og brösuðum mat.

Hver segir samt að maður þurfi alltaf að setja kjötmeti á grillið ? Hér ákvað ég að búa til ofsa góðan laxaborgara sem er í senn hollur, ferskur og afar bragðgóður.

Borgarann er mjög einfalt að gera, bara skella í smá marineringu og hræra í holla góða sósu með. Laxinn þarf einungis að marinerast í 30 mínútur áður en hann fer á grillið.

Með borgaranum hafði ég ferskan grillaðan aspas sem er súper auðvelt að gera, bara pennsla með sítrónuolíunni góðu frá MUNA, salt, pipar og svo smá parmesan eftir á.

Leynihráefnið í marineringunni er sítrónuólífuolían góða frá MUNA en hvað er betra með laxi en sítrónukeimur.

Marineringinn er í senn sæt og sölt en þar spilar góða blómahunangið frá MUNA sinn sess með sínu djúpa og góða hunangsbragði.

Gott grillbragðið skín í gegn og hver biti er gómsætur. Hér þarf enginn að hafa samviskubit því þessi máltíð er hlaðin góðri næringu og vítamínum sem kroppurinn þarfnast.

Hér notaði ég hefðbundið hvítt hamborgarabrauð en því má skipta úr fyrir grófara brauð en til er gott úrval af alls kyns grófum bollum sem nota má í staðinn.

Aspasinn kemur svo í staðinn fyrir franskarnar en ég notaði afgangssósu til að dýfa honum í og það var algjört lostæti.

Grillaður marineraður lax í hamborgarabrauði með fetaosta-hvítlauksjógúrtsósu

-Samstarf- Nú er grilltíminn að hefjast með hækkandi sól. Ég elska grillmat, en stundum getur það orðið of mikið af kjöti og… Hollusta Grillaður marineraður lax í hamborgarabrauði með fetaosta-hvítlauksjógúrtsósu European Prenta
Serves: 4 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Marinering 

  • 1/2 dl sojasósa 
  • 1/2 dl blómahunang frá MUNA
  • 1 dl vatn
  • 1/2 dl sítrónuólífuolía frá MUNA 
  • Börkur af einni sítrónu 
  • 1/2 tsk hvítlauksduft (athugið ekki hvítlaukssalt heldur Garlic Powder eða hvítlauksduft)
  • 1/2 tsk laukduft (Onion Powder)
  • Nokkrar chiliflögur en má sleppa 
  • Gróft salt til að nota við grillið 

fetaosta-hvítlauksjógúrtsósu

  • 250 gr lífrænt ræktuð grísk jógúrt (má líka vera ólífræn)
  • 65 gr fetaostakubbur án olíu 
  • 3-4 marin hvítlauksrif 
  • Safi úr 1/2 sítrónu
  • 1 tsk gróft salt 
  • svartur pipar 
  • 1/2 tsk cumin (athugið ekki kúmen eins og í kringlum)
  • 1 msk Blómahunang frá MUNA 
  • Ferskt Dill eftir smekk (Ekki nota þurrkað Dill, það verður ekki eins) 

Annað hráefni

  • 1 stk laxaflak stórt 
  • 2 Avókadó 
  • Lambhagasalat í potti 
  • Ferskt Timian í potti eða klettasalat eða spínatkál ykkar er valið 
  • Rauðlaukur 
  • 4 hamborgarabrauð eða grófar brauðbollur að eigin vali 
  • Eitt búnt af ferskum aspas 
  • Sítrónuólífuolía 
  • salt 
  • pipar 
  • parmesan ostur 

Aðferð

Marinering 

  1. Hrærið öllum hráefnum nema sítrónuberki saman í eldfast mót 
  2. Raspið svo börkin af sítrónunni saman við, en passið vel að taka bara gula partinn, alls ekki fara ofan í hvíta lagið því það er rammt á bragðið 
  3. Skerið svo Laxaflakið í 4 vænar sneiðar 
  4. Leggjið hverja sneið með bleika partinn á grúfu ofan í marineringuna og dreifið henni yfir allar sneiðarnar 
  5. Látið standa í marineringunni upp á borði í minnst 30 mínútur (lengur ef vill en þá í kæli)

fetaosta-hvítlauksjógúrtsósu

  1. Hrærið jógúrtina upp í skál og blandið saman við hana hunangi, kryddum, salti og pipar
  2. Merjið hvítlauksrifinn út í og hrærið vel saman 
  3. Stappið næst fetaostakubbinn vel með gaffli og hellið saman við hann sítrónusafanum meðan þið stappið 
  4. Bætið svo út í grísku jógúrtina  ásamt smátt skornu dillinu og hrærið vel saman 
  5. Geymið í kæli meðan þið grillið laxinn og útbúið restina af matnum

Matreiðsla og samsetning

  1. Undirbúið nú aspasinn, takið af honum endann en það er gert með því að beigja hann og þá brotnar endinn sjálfkrafa af sem á ekki að elda með 
  2. Setjið hann á fat og hellið sítrónuólífuolíu yfir hann og saltið og piprið 
  3. Kveikið upp í grillinu og þegar það er heitt lækkið þá aðeins í því og setjið þá Laxinn á það með roðið niður og saltið með grófu salti bara létt yfir 
  4. Pennslið á hann reglulega með marineringunni sem er eftir í fatinu
  5. Þegar laxinn er orðin fallega bleikur inn að miðju snúið honum þá niður á hvolf en gott er að setja hann þá á efri hillu en ekki beint yfir hitann. Takið af þegar hann er búin að taka á sig fallegan bleikan lit og passið að ofelda hann ekki
  6. Gott er að setja aspasinn á þegar um 5 mínútur eru eftir af laxinum en hann þarf  c.a 5 mínútur á grillinu 
  7. Hitið hamborgarabrauð á grillinu ef þið viljið 
  8. Setjið fetasósu á neðra brauðið, næst kál og rauðlauk, laxinn þar ofan á og avókadó. Setjið svo aftur sósu yfir allt og annað hvort ferskt timian (alls ekki þurrkað), eða klettasalat eða Spínatkál og lokið svo með efra lokinu. 
  9. Raspið parmesan yfir nýgrillaðan aspasinn og berið fram saman með restinni af sósunni 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here