Geggjuð Taco súpa með heimagerðu Nachos

höf: maria

-Samstarf-

Þessi súpa var að mínu mati alveg stórkostlega góð. Eins og með flestar súpur var hún jafn vel enn betri daginn eftir.

Það er ekkert mál að gera hana og tekur aðeins örlitla stund. Auk þess þá er hún holl sem skemmir ekki fyrir.

Með súpunni er nachos alveg ómissandi en hér ákvað ég að baka mitt eigið nachos því ég vil hafa það næringarríkt og hollt.

Ég lofa það er ofsa gott, með guacamole eða rjómaosti, nú eða bara til að mylja út í súpuna eins og ég geri oftast.

Uppistaðan í nachoinu eru fræ, maísmjöl og ólífuolía, svo það getur ekki verið annað en næringarríkt og hollt.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_3671-1024x926.jpg

Fyrir utan það að vera svona bragðgott. Það er möst að bera það fram með súpuni en í súpuna er líka gott að setja avókadó, sýrðan rjóma og rifinn ost.

Ég lofa að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með þessa máltíð.

Geggjuð Taco súpa með heimagerðu Nachos

-Samstarf- Þessi súpa var að mínu mati alveg stórkostlega góð. Eins og með flestar súpur var hún jafn vel enn betri daginn… Hollusta Geggjuð Taco súpa með heimagerðu Nachos European Prenta
Serves: 4-6 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Taco súpa

  • 2 msk Muna Ólífuolía
  • 1 laukur smátt skorinn
  • 3 marinn hvítlauksrif
  • 500-600 gr nautahakk
  • Salt og pipar
  • 2 kúfullar msk af MUNA tómatpúrru
  • 1 rífleg msk taco krydd (ég notaði frá Gurmey)
  • 1 dós maísbaunir (safinn með)
  • 1 dós maukaðir tómatar
  • 1 dós nýrnabaunir (safinn með)
  • 1 msk dökkt MUNA agavesíróp
  • 1 dós sýrður rjómi með graslauk
  • 1 tsk hot wing sósa
  • 2 msk grænmetiskraftur í duftformi
  • 2 bollar soðið vatn

Nachos 

  • 35 gr  sesamfræ
  • 35 gr Hörfræ
  • 20 gr Graskersfræ
  • 45 gr Sólblómafræ
  • 2 dl Maísmjöl (glútenlaust fæst í Fræinu og Hagkaup. ATH ekki sama og Maizenamjöl þetta er frá merkinu Ma Vie)
  • 1/2 tsk borðsalt
  • 1/2 dl Extra Virgin Ólífuolía frá MUNA
  • 2 1/2 dl sjóðandi heitt vatn
  • Gróft salt
  • Þurrkaðan graslauk

Aðferð

Taco Súpa 

  1. Hitið olíuna í potti og bætið lauk og hvítlauk saman við og mýkjið í olíunni 
  2. Þegar laukarnir eru orðnir mjúkir setjið þá nautahakkið út á og saltið og piprið 
  3. Þegar hakkið er orðið ljósbrúnt að lit setjið þá tómatpúrru og nacho krydd út á og hrærið vel inn í hakkið 
  4. Bætið næst við maukuðu tómötunum og baununum og hellið safanum af báðum baununum með út í súpuna
  5. Hrærið saman og bætið grænmetis soðduftinu og vatninu saman við ásamt agavesírópinu og hot wing sósunni og hrærið saman 
  6. Bætið svo sýrða rjómanum út í og látið sjóða saman í 15-20 mínútur 
  7. Berið fram með avókadó, rifnum osti og sýrðum rjóma ásamt nachos til að mylja út í

Nachos 

  1. Setjið Fræin í blandara eða matvinnsluvél og malið þar til verður að fínu dufti
  2. Setjið svo fræin borðsaltið og maísmjölið saman í skál og hrærið saman með skeið.
  3. Setjið því næst olíuna og hrærið hana aðeins inn í blönduna.
  4. Sjóðandi vatninu er svo hellt yfir að lokum og allt hrært saman.
  5. Setjið deigið á bökunarpappír og svo annan bökunarpappír ofan á.
  6. Byrjið á að fletja það aðeins út með flötum lófa og notið svo kökukelfi til að fletja deigið út í ferning sem er jafnstór og bökunarpappírinn.
  7. Takið næst pappírinn ofan af og setjið deigið á bökunarplötu með pappírnum sem var undir. Best er að draga pappírinn upp á plötuna, það þarf að fara varlega að deigið leki ekki til.
  8. Saltið svo yfir allt með grófu salti og stráið þurrkuðum graslauk yfir. Ekki vera feiminn við saltið og graslaukinn en mér finnst best að hafa vel af því. Passið þó að salta ekki heldur of mikið.
  9. Að lokum er gott að skera í deigið með pizzaskera nacholagaða þríhyrninga 
  10. Bakist í 55 mínútur við 150 c°

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here