Hátíðar piparmyntuís með ferskri myntu og Brownie deig botni

höf: maria

-Samstarf-

Ég elska piparmyntu ís en mér hefur oft fundist erfitt að ná rétta piparmyntubragðinu þegar ég geri hann heimalagaðan.

Mér hefur alltaf fundist vera eins og einhverskonar gerfibragð þegar maður notar bara plein piparmyntudropa.

Því ákvað ég að reyna að finna lausn á því og prófa að nota ferska myntu ásamt piparmyntudropum og vitir menn.

Útkoman var alveg eins og ég vildi hafa ísinn, alveg eins og út úr ísbúð ef ekki bara betri.

Ég hef mikið verið að notast við niðusoðna mjólk eða condensed milk þegar ég geri heimagerðan ís en það er algjör snilld.

Með því að nota niðursoðna mjólk þarf ekki að notast við hrá egg né aukasykur, hráefnin eru í raun ekkert annað en bara mjólkin og rjómi og svo bætir maður því sem maður vill í ísinn.

Þar sem ég vildi hafa allt hágæða hráefni í honum ákvað ég að nota hágæða lífrænt ræktað fyllt piparmyntu og karamellu súkkulaði í hann sem er algjört möst.

Piparmyntuís með ferskri myntu og Brownie deig botni

-Samstarf- Ég elska piparmyntu ís en mér hefur oft fundist erfitt að ná rétta piparmyntubragðinu þegar ég geri hann heimalagaðan. Mér hefur… Sætt Hátíðar piparmyntuís með ferskri myntu og Brownie deig botni European Prenta
Serves: 10 Prep Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Ísinn 

  • 1 dós 397 gr af niðursoðinni mjólk eða Condenced milk (fæst í Hagkaup og víðar)
  • 500 ml rjómi
  • 30 gr fersk mynta
  • 1 dl vatn
  • 1 msk sykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 tsk piparmyntudropar
  • 100 gr Rapunzel súkkulaði með karamellufyllingu
  • 100 gr Rapunzel súkkulaði með piparmyntufyllingu

Brownie kökudeigsbotn

  • 110 gr mjúkt smjör
  • 115 gr sykur
  • 100 gr púðursykur
  • 35 gr kakó
  • 2 msk mjólk
  • 1 tsk vanilludropar
  • 165 gr bakað hveiti (sjá í aðferð)
  • ½ tsk fínt borðsalt
  • 100 gr Rapunzel súkkulaði með piparmyntufyllingu

Aðferð

Ísinn

  1. Byrjið á að setja 1 dl af soðnu vatni og 1 msk af sykri yfir 30 gr af myntulafum í skál en týnið laufin af stilknum fyrst. Gott er að gera þetta jafnvel kvöldinu áður og láta standa í kælir yfir nótt en ekki láta liggja styttra í bleiti en 30 mínútur
  2. Byrjið svo á að gera ísinn með þvi að þeyta rjómann
  3. Blandið svo vanilludropum og piparmyntudropum saman við niðursoðnu mjólkna og hrærið vel, ef þið viljið setja smá grænan matarlit er gott að setja hann einnig saman við niðursoðnu mjólkina
  4. Takið þá myntuna og setjið í blandara ásamt vatninu og maukið þar til verður alveg að vökva nánast, setjið þá í fínt sigti og þrýstið vökvanum í gegn og leyfið sem mest af korginum að fara með gegnum sigtið og hendið svo restinni af korginum. Blandið sigtaða myntuvatninu saman við niðursoðnu mjólkina og hrærið vel saman
  5. Þegar rjóminn er þeyttur bætið honum þá saman við niðursoðnu mjólkina í þrennu lagi og hrærið varlega á milli með sleikju þar til rjóminn og mjólkinn er vel blandað saman.
  6. Bætið þá smátt skornu Rapunzel súkkulaðinu saman við ísblönduna og hrærið varlega saman með sleikju
  7. Hellið svo í mót og frystið yfir nótt eða lágmark 8 klst

Brownie kökubotn

  1. Hitið ofninn á 175 C°blástur og bakið hveitið í 10 mín á bökunarplötu með bökunarpappír á.
  2. Takið hveitið svo út og kælið alveg en með því að baka hveitið er óhætt að borða hrátt deigið
  3. Á meðan hveitið bakast hrærið þá saman mjúkt smjör, sykri og púðursykri í hrærivél þar til verður ljóst og vel blandað saman
  4. Bætið næst kakó út í og hrærið áfram
  5. Næst eru vanilludropar og mjólk sett saman við og hrært ögn áfram
  6. Hrærið saman kældu hveitinu og salti og bætið út í deigið og hrærið þar til allt er vel blandað samaní klístrað deig
  7. Skerið svo Rapunzel fyllta myntusúkkulaðið niður og bætið saman við og hrærið ögn í vélinni
  8. Þjappið svo deiginu í form sem er jafn stórt ísforminu og geymið í kælir
  9. Gott er að taka brownie deigið út eins og 20 mínútum áður en á að setja ísinn á það svo það mýkjist
  10. Þegar ísinn er tilbúin hvolfið honum þá yfir browniedeigið og berið fram

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here