Ljóskur með öðruvísi ívafi

höf: maria

-Samstarf-

Hér er um að ræða ljóskur en samt ekki alveg ljóskur. Ljóskur eða blondies á ensku eru oftast andstæðan við brúnkur eða Brownies.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_6589-683x1024.jpg

Nánast eins nema í stað þess að vera dökkar eru þær ljósar og úr hvítu súkkulaði. Þessar hér eru akkurat þannig en þó ekki.

Ég get best lýst þeim þannig að þær eru eins og blanda af ljóskum og kransaköku. Kranskökuáferðin kemur líklegast því ég nota möndlumjöl.

Mér finnst eitthvað svo gott að nota möndlumjöl í bakstur því það gefur vissan grófleika eins og marsípan áferð, án marsípanbragðsins samt.

Þeim sem finnst marsípan ekki gott ættu samt að geta borðað þessa köku því það er ekki möndlubragð af henni eins og af maríspani.

En ef þú vilt hafa hana á bragðið eins og marsípan er hægt að setja möndludropa út í deigið, fyrir krakkana mæli ég með kökuskrauti og fyrir súkkulaði elskendur súkkulaði, hvort sem er hvítt eða dökkt, jafvel bæði.

Kökuna er ótrúlega einfalt að gera enda örfá hráefni í henni. Ég notaði dásamlega möndlusmyrju frá Rapunzel í staðinn fyrir smjör og var útkoman skemmtilega öðruvísi.

Ljóskur með öðruvísi ívafi

-Samstarf- Hér er um að ræða ljóskur en samt ekki alveg ljóskur. Ljóskur eða blondies á ensku eru oftast andstæðan við brúnkur… Lítið og létt Ljóskur með öðruvísi ívafi European Prenta
Serves: 12 stk Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 1 krukka 250 gr Kókos Mandel creme frá Rapunzel 
  • 200 gr hvítt súkkulaði (ég notaði hvítt súkkulaði með kókós frá Rapunzel)
  • 3 egg meðastór 
  • 120 gr  möndlumjöl (getið líka notað hveiti ef þið viljið ekki marsípanáferðina) 
  • 1 tsk fínt borðsalt 
  • 1 tsk vanilludropar 

Valfrjálst: Ef þið viljið marsípan bragð setjið þá 1 tsk möndludropa, fyrir krakkana smá kökuskraut í deigið, svo má líka setja dökka og hvíta súkkulaðibita eða hnetur og bara hvað sem hugurinn girnist. 

Aðferð

  1. Bræðið hvíta sýkkulaðið í örbylgju í 20-30 sekúndur í senn og hrærið á milli þar til nánast alveg bráðið en örlitlir bitar sjáanlegir 
  2. Bætið þá möndlusmyrjunni frá Rapunzel saman við og setjið í síðustu 30 sekúndurnar í örbylgju svo allt verði bráðið, mjúkt og lint eins og þykk súrmjólk 
  3. Bætið þá eggjunum saman við og hrærið með handþeytara eða í hrærivél en deigið verður smá klístrótt og seigt á þessu stigi 
  4. Hærið að lokum möndlumjölinu, saltinu og vanilludropunum saman við 
  5. Ef þið viljið hafa eitthvað aukalega af því sem ég tel upp að ofan setjið það þá síðast í og hrærið með sleif eða sleikju
  6. Setjið svo smjörpappír í ferkentað mót sem er c.a 20x20 cm og hellið deiginu í og sléttið úr því, gott er líka að lemja mótinu fast niður í borðið svo að deigið þjappist vel saman í mótinu
  7. Bakið í 170 °C heitum ofni í 30-35 mínútur og látið svo kólna í allavega 15-20 mín áður en tekið er úr mótinu

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here