-Ekki samstarf-
Um daginn gerði ég svo dásamlegar hreindýrabollur úr hreindýrahakkinu frá Rúnu vinkonu sem ég er enn að hugsa um.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/12/IMG_2874-683x1024.jpg)
Uppskriftina af þeim finnið þið hér. Ég var svo heppin að eiga hinn helminginn eftir af hreindýrahakkinu og ákvað að nota það í borgara.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/12/IMG_2853-754x1024.jpg)
Ég get sko sagt ykkur það að þeir voru hreint út sagt geggjaðir. Stökkir og mjúkir í senn, bragðmiklir og með sætu meðlæti sem passaði 100 % saman.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/12/IMG_2870-683x1024.jpg)
Ég blandaði örlitlu grísahakki með til að fá fituna en hreindýrahakk er mjög fitusnautt og á það til að verða þurrt.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/12/IMG_2878-683x1024.jpg)
Einnig blandaði ég Lu kexi, osti og kryddum saman við til að fá gott og djúpt bragð af borgurunum, ég sver en þessir eru enn betri en nautaborgarar.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/12/IMG_2868-802x1024.jpg)
Ég hafði þá þykka eða 120 gr hvern og náðust heilir 9 borgarar úr þessari uppskrift, en það er sniðugt að frysta helmingin ef þið viljið eiga seinna.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/12/IMG_2881-683x1024.jpg)
Á borgarana setti ég svo villisveppakryddost, sultaðan rauðlauk í balasmikedik, smjörsteikta sveppi, kál, súrsaðar gúrkur og majones með garlic og caramelised onion !!!!
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/12/IMG_2854-683x1024.jpg)
Sjúklega gott og allt bara keypt í krukku út í búð nema steikja þarf sveppina.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/12/IMG_2879-683x1024.jpg)
Ég get lofað ykkur því að þessi mun sko ekki bregðast ykkur, og eins og með allt annað sem ég geri þá er afar einfalt að gera þessa borgara.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/12/IMG_2865-683x1024.jpg)
![IMG_2860](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/12/IMG_2860-585x585.jpg)
Hráefni
Borgarar
- 600 gr hreindýrahakk
- 250 gr grísahakk
- 100 gr Lu kex með salti og pipar
- 100 gr piparostur rifinn (þessi sem fæst rifinn í boxi)
- 2 msk villikraftur í duftformi (ég notaði Vildt Bouillon frá Oscar sem fæst í Bónus og víðar en má nota hvaða merki sem er)
- 1 msk villjurtir (ég notaði frá Pottagöldrum)
- 2 eggjarauður
Meðlæti og annað
- Hamborgarabrauð
- Nokkrar sneiðar af villisveppakryddosti
- Sultaður rauðlaukur í balsamikedik (fékk minn í Hagkaup)
- Súrsaðar gúrkur
- Lambhagakál
- klettasalat
- 250 gr sveppir (skera í þunnar sneiðar, smjörsteikja og salta)
- Majónes með garlic og caramelised onion eða hvítlaukssósa að eigin vali
Aðferð
Borgarar
- Byrjið á að setja hakkið saman í stóra skál
- Næst setti ég svo Lu kex og rifna piparostinn saman í blender og malaði þar til varð að fínu dufti (klístrast smá saman en myljið það svo í sundur milli fingrana ofan í skálina með hakkinu)
- Setjið næst kraftinn og kryddjurtirnar saman við hakkið og að lokum eggjarauðurnar
- Hnoðið vel saman en bara þannig allt sé blandað saman, ef hnoðað er allt of mikið geta borgararnir orðnir seigir
- Skitpið svo í 9 jafnar kúlur c.a 117-120 gr hver og mótið borgara með hamborgarapressu eða milli lófana, ef þið gerið með lófunum passið þá að hafa smá dæld í miðjunni svo hann steikist jafnt í gegn
- Kælið í eins og 30 mín eða lengur áður en á að steikja þá
- Steikið borgarana vel í gegn, ég hafði mína dökka og vel steikta þannnig urðu þeir kríspý. Setjið svo sneiðar af villisveppaosti ofan á hvern borgara þar til hann er bráðin en ekki krydda borgarana neitt !!! Allt bragð er komið í hakkið
Samsetning
- Takið hamborgarabrauð í sundur og setjið sósuna á botninn, kálið svo ofan á, súrsaðar gúrkur og rauðlauk þar ofan á
- Kjötið kemur svo ofan á allt heila klabbið og sveppirnir efst og loka svo með efra brauði og njóta !!!
Verði ykkur að góðu
María