Pazíur með Dulce de leche eða Karamellu Sörur

höf: maria

-Ekki samstarf-

Ég hef ekki verið mikið í að gera Sörur þó mér finnist þær mjög góðar, misjafnlega góðar þó.

Ég hef alltaf haft það á tilfinningunni að þær séu bara ofboðslega erfiðar að gera og mislukkist hjá mörgum.

Því hef ég oft ekki lagt í það að baka þær. Hins vegar hef ég verið að kaupa mér eina og eina söru hér og þar.

Eitt sinn fékk ég svo góða karamellu söru í bakaríi að ég gat ekki hætt að hugsa um hana. Því ákvað ég að gera mína eigin uppskrift af slíkri Söru.

Þær lukkuðust fullkomlega og það í fyrstu tilraun enda afar einfalt og bara gaman að gera þær.

Ég ákvað líka að skíra þær Pazíur og kenna þær við sjálfa mig haha en ég fékk þá skemmtilegu hugmynd frá fylgjanda mínum á instagram.

Ég held mér sé óhætt að segja að þær eru meiriháttar góðar en allir sem þær smökkuðu voru sammála um það.

Það má segja að þær líkist meira góðum konfektmola en smákökum.

Dásamlegur botn úr marsípani og silkimjúk fylling sem er rík af karamellubragði í ætt við Dulce de leche.

Svo eru Pazíurnar bara svo ofboðslega fallegar verð ég að segja.

Ég hvet ykkur til að prófa og ég lofa að það er ekki erfitt né flókið, bara smá dúllerí og gaman, bara eins og að jólaföndra eitthvað einfalt.

Ef þið prófið væri mjög gaman að heyra frá ykkur hvernig ykkur fannst og lukkaðist hjá ykkur.

Pazíur með Dulce de leche eða Karamellu Sörur

-Ekki samstarf- Ég hef ekki verið mikið í að gera Sörur þó mér finnist þær mjög góðar, misjafnlega góðar þó. Ég hef… Bakstur Pazíur með Dulce de leche eða Karamellu Sörur European Prenta
Serves: 48 stk Prep Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Botn 

  • 400 gr marsípan 
  • 2,5 dl strásykur 
  • 3 eggjahvítur 

Dulce de leche krem 

1 stig 

  • 1 stk af 397 gr dós af niðursoðinni mjólk (Condenced milk, fæst í Hagkaup, Fjarðarkaup og víðar og er oftast hjá Kínamatnum bara alls ekki kaupa Condenced coconut milk)
  • 90 gr smjör 
  • 100 gr púðursykur 
  • 1/2 tsk fínt borðsalt 
  • 1 msk bökunarsíróp eða Golden síróp 

2 stig

  • 400 gr mjúkt smjör 
  • 4 dl flórsykur 
  • 3 tsk vanilludropar 
  • 4 eggjarauður 
  • 3 tsk gróft salt 

Súkkulaði til að dýfa í 

  • 150 gr rjómasúkkulaði dropar 
  • 150 gr hvítir súkkulaðidropar 
  • 1 msk lyktar og bragðlaus kókósolía eða 1 msk palmínfeiti (má sleppa en gerir súkkulaðið meira glansandi og stökkara)
  • pínu gróft salt ein klípa c.a 

Aðferð

Botn 

  1. Rífið niður marsípanið í skál og blandið við sykrinum og eggjahvítunum
  2. Þeytið þar til deigið er kekkjalaust
  3. Sprautið deiginu í kringlóttar sléttar kökur ofan á ofnskúffu með bökunarpappír (um 4 cm í þvermál)
  4. Bleytið fingurgóminnn á vísifingri og sléttið með honum úr kökunum svo þær verði jafnari
  5. Látið kökurnar bíða á bökunarplötunni við stofuhita í 30 mínútur og byrjið að gera kremið á meðan
  6. Þegar botninn er búinn að standa, bakið þá á 180 C°blæstri í 13-15 mínútur eða þar til gyllinbrúnar
  7. Látið þær svo kólna

Dulce de leche krem 

Stig 1

  1. Setjið dósina af niðursoðinni mjólk, smjör, púðursykur, bökunarsíróp og fínt borðsalt saman í pott og látið bráðna saman við vægan hita 
  2. Þegar allt er bráðnað vel saman hækkið þá hitann vel upp og látið byrja að bullsjóða 
  3. Lækkið þá ögn hitann aftur og látið sjóða saman og hrærið vel í á meðan svo brenni ekki, sjóðið þar til verður að þykkri karamellu eða c.a 5-7 mín 
  4. Takið svo úr pottinum og setjið í skál og leggjið til hliðar og látið kólna á borði

Stig 2 

  1. Setjið mjúkt smjörið í hrærivél og þeytið það ögn þar til það verður ljóst og létt
  2. Bætið þá flórsykri, salti og vanilludropum út í og þeytið ögn áfram 
  3. Bætið þá einni eggjarauðu út í í einu meðan vélin er enn að þeyta kremið og þeytið áfram þar til kremið verður fallega létt og mjúkt 
  4. Þegar karmellan er búin að kólna bætið henni þá út í kremið hægt og rólega með vélina í gangi á hægum hraða, hrærið saman þar til karamellan er rétt búin að blandast vel saman við og ekki lengur 

Súkkulaði til að dýfa í 

  1. Bræðið súkkulaðið og olíuna ásamt saltinu saman yfir vatnsbaði 
  2. Leyfið því rétt að kólna áður en á að dýfa pazíum út í það 

Samsetning 

  1. Þegar botnarnir eru alveg kældir setjið þá dulce de leche kremið í sprautupoka án stúts og klippið framan af honum svo gatið verði eins og 1 cm 
  2. Sprautið svo kremi ofan á hvern botn svo það verði smá þykkt eins og þið sjáið á myndunum 
  3. Dýfið svo krempartinum ofan í brædda súkkulaðið og passið að láta umframsúkkulaði renna vel af 
  4. Setjið svo yfir á bökunargrind eða á disk og setjið í kælir þar til súkkulaðið er alveg storknað

Punktar

Mér finnst langbest að geyma Pazíurnar í frystir og taka svo út 15 mín áður en þær eru bornar fram

Gleðileg jól

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here