Dásamlega mjúk og létt súkkulaði hrekkjavökukaka

höf: maria

Þessa uppskrift af súkkulaðiköku er ég búin að eiga í fjöldamörg ár, en hún er mín allra uppáhalds súkkulaðikaka.

Kakan er mjög dökk og bragðmikil en jafnframt afar létt og mjúk í senn. Upprunalega uppskriftin er fengin hjá presthjónum í Alabama sem vinkona mín dvaldi hjá á sínum tíma.

Uppskriftina fékk ég svo hjá vinkonu minni, en ég ákvað að breyta nokkrum atriðum í henni og varð hún enn betri.

Hér notast ég bara við skál og sleikju en mér finnst best að gera hana án hrærivélar því þannig tryggi ég að kakan verði ofsalega mjúk og ekki of seig.

Dásamlega mjúk og létt súkkulaði hrekkjavökukaka

Þessa uppskrift af súkkulaðiköku er ég búin að eiga í fjöldamörg ár, en hún er mín allra uppáhalds súkkulaðikaka. Kakan er mjög… Bakstur Dásamlega mjúk og létt súkkulaði hrekkjavökukaka European Prenta
Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Hægt er að nota þessa uppskrift í tvo 26 cm botna og setja þá krem á milli og ofan á. Eða að gera hana eins og ég gerði en ég setti hana í hringlótt formkökumót með gati í miðjunni, en það þarf að vera í stærri kantinum.

Kakan 

  • 400 gr sykur 
  • 220 gr hveiti 
  • 75 gr bökunarkakó dökkt
  • 1,5 tsk lyftiduft 
  • 1,5 tsk matarsódi 
  • 1 tsk fínt borðsalt 
  • 2 egg 
  • 250 gr súrmjólk 
  • 75 gr matarolía 
  • 2 tsk vanilludropar 
  • 200 gr sjóðandi heitt kaffi (ég set yfirleitt bara 200 gr/ml af sjóðandi vatni í bolla og hræri 1 tsk instantkaffi útí, það kemur ekki kaffibragð af kökunni heldur bara dýpkar súkkulaðibragðið) 
  • 100 gr súkulaðidropar dökkir (myndi sleppa ef bakaðir eru tveir botnar, nota bara í formkökuna)

Kremið 

  • 125 gr mjúkt smjör 
  • 210 gr flórsykur 
  • 65 gr hvítt súkkulaði 
  • 1 tsk vanilludropar 
  • 2 msk rjómi 
  • appelsínugulur matarlitur 

Aðferð

Kakan 

  • Hitið ofn á 175 °C blástur eða 185°C án blásturs 
  • Setjið öll þurrefnin saman í skál og hrærið létt saman með sleikju 
  • Bætið næst eggjum, olíu, vanilludropum og súrmjólkinni saman við og hrærið létt saman þar til verður að kekkjóttu klístruðu og þykku deigi en ekki hræra of mikið 
  • Hellið svo sjóðandi heitu kaffinu saman við og hrærið varlega saman með sleikju þar til deigið er þunnt og fallega glansandi, reynið að komast af með að hræra sem minnst eða bara þar til allt er rétt blandað saman 
  • Bætið síðast við súkkulaðidropum og hrærið létt saman
  • Smyrjið næst form mjög vel að innan með þykku lagi af smjöri, ef þið notið fomkökuform þarf líka að sáldra smá hveiti inn í það yfir smjörið og hrista allt umframhveiti af
  • Ef þið ætlið að gera tvo botna í 26 cm hringformum þá er nóg að smyrja bara að innan með smjöri 
  • Bakið í 45-50 mínútur en gott er að stinga prjón í miðja kökuna og ef hann kemur hreinn upp úr er kakan til
  • Ef þið ætlið að baka 2x 26 cm botna er nóg að hafa hana í ofninum í 35 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn upp úr
  • Látið kólna vel áður en kremið er sett á

Kremið 

  • Bræðið súkkulaðið og látið það kólna ögn án þess að það stífni aftur (best að bræða yfir vatnsbaði)
  • Þeytið mjúkt smjörið á miðlungshraða þar til það verður ögn loftkennt, bætið þá flórsykrinum smátt og smátt útí svo hann fuðri ekki upp um allt 
  • Bætið næst rjóma, vanilludropum og súkkulaðinu ásamt matarlitnum út í og hrærið þar til kremið verður loftkennt og mjúkt
  • Ég tók plastsprautupoka og klippti gat á hann en notaði engan stút og sprautaði svo kreminu á í svona ræmur 
  • Ef þið ætlið að gera tvo botna með kremi á milli og allt um kring er betra að tvöfalda kremuppskriftina til að hafa nóg krem

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here