Poffertjes hollenskar pönnukökur með hlynsírópsmjöri

höf: maria

-Samstarf-

Ég er búin að ætla mér í þónokkurn tíma að gera nokkrar uppskriftir af góðgæti sem ég kynntist í hinni einu sönnu Ameríku.

Ég hafði ekki hugmynd um hvað Dutch pancakes eða Poffertjes var fyrr en ég fór á stað í New York sem heitir Le pain quotidien.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_5878-683x1024.jpg

Þar var á boðstólnum þessar dýrindis litlu kringlóttu pönnukökur sem voru bornar fram með banana og maple smjöri, og úff hvað þetta var gott.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_5846-683x1024.jpg

Poffertjes er mjög þekkt í Hollandi og kannast kannski margir sem hafa þangað komið við að hafa keypt sér poffertjes af götusölum.

Hægt er að fá poffertjes með súkkulaðiáleggi, rjóma, síróp eða bara hverju því sem hugurinn girnist. Oftast er þó alltaf búið að sáldra flórsykri yfir.

Svo ég lýsi nú aðeins hvað poffertjes er þá er það ekki svo langt frá hinum dönsku eplaskífum, nema í stað lyftidufts er notað ger og það eru engin epli í þeim.

Til að geta bakað þær þarf maður helst að eiga sérstaka pönnu til verksins sem svipar mjög til eplaskífupönnu en það er akkurat eplaskífupanna sem ég notaði, sjá mynd neðst.

Hlynsírópsmjör er svo annað sem ég hafði aldrei bragðað áður en vá hvað það er gott. Hér er mikilvægt að nota gott gæða hlynssíróp (maple syrop) en ég notaði frá Rapunzel.

Rapunzel hlynsírópið er hið fullkomna síróp til að nota í maple smjör. Það er Dökkt, kröftugt og gefur eins og karamellubragð.

Auk þess er það lífrænt ræktað en bragð sírópsins einkennist af uppskerutímanum. Því seinna sem sírópið er tekið úr trénu verður það dekkra, bragðmeira sætara.

Rapunzel er mjög vandað merki en Rapunzel framleiðir lífrænar vörur af ást og umhyggju og eru frumkvöðlar í lífrænni ræktun.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_5901-683x1024.jpg

Rapunzel leggur sérstaka áherslu ekki aðeins á gæði matarins heldur einnig á lífsgæði bændanna sem rækta hann.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_5890-1024x683.jpg

Poffertjes hollenskar pönnukökur með hlynsírópsmjöri

-Samstarf- Ég er búin að ætla mér í þónokkurn tíma að gera nokkrar uppskriftir af góðgæti sem ég kynntist í hinni einu… Bakstur Poffertjes hollenskar pönnukökur með hlynsírópsmjöri European Prenta
Serves: 4 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Poffertjes deig 

  • 350 ml mjólk eða 3,5 dl 
  • 1 tsk þurrger 
  • 150 gr hveiti 
  • 100 gr bókhveiti (það má líka sleppa bókhveiti og nota venjulegt hveiti í staðinn, en hefðbundnar eru alltaf með bókvheiti í Hollandi, fæst í Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni og víðar) 
  • 2 msk sykur 
  • 1/2 tsk fínt borðsalt 
  • 1 egg 
  • 1 tsk vanilludropar
  • Smjör til steikingar 
  • Flórsykur til að sáldra yfir tilbúnar pönnukökurnar

Maple smjör 

  • 115 gr kalt smjör 
  • 1/2 bolli Rapunzel maple síróp 
  • 1/2-1 tsk gróft salt 

Aðferð

Poffertjes deig 

  1. Setjið öll þurrefnin saman í skál og hrærið (líka þurrgerið)
  2. Velgjið mjólkina í örbylgju og hafið hana ögn heitari en ylvolga 
  3. Setjið svo eggið út í ásamt mjólkinni og vanilludropunum og hrærið vel saman án þess að ofhræra, bara svo það blandist rétt saman 
  4. Leggjið plastfilmu yfir skálina og hefið á volgum stað í 1 klst 
  5. Þegar deigið er búið að hefast hitið þá eplaskífu eða profertjes pönnu og penslið hvert hólf með bræddu smjöri 
  6. Mér finnst best að hella deiginu í könnu með stút og hella í hvert gat á pönnunni til hálfs 
  7. Bakið þar til koma göt ofan á pönnukökuna og snúið henni þá við með tveimur grillpinnum eða oddhvössum hlut t.d stórri nál eða eitthvað sem líkist grillpinna og bakið svo hina hliðina þar til verður gyllinbrún eða í eins og í 1-2 mínútur 

Maple smjör 

  1. Hitið Rapunzel maple sírópið í potti við vægan hita, bara hita ekki sjóða 
  2. Setjið svo kalt smjör og salt út í og látið smjörið bráðna vel saman við og hrærið vel í þegar það er alveg bráðnað
  3. Berið svo fram heitt með pönnukökunum en þetta er einnig mjög gott með hefðbundnum amerískum pönnukökum sem dæmi 

Borið fram 

  1. Berið pönnukökurnar fram heitar og sáldrið smá flórsykri yfir þær
  2. Mér finnst rosa gott að hafa niðursneiddan banana með og hella svo heitu maple smjörinu yfir 
Eplaskífupanna

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here