-Samstarf-
Þennan kjúklingarétt hef ég gert í meira en 15 ár og stendur hann alltaf fyrir sínu.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/09/IMG_1413-683x1024.jpg)
Hann er í senn hollur en afar ljúffengur, og bæði krakkar og fullorðnir elska hann.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/09/IMG_1430-683x1024.jpg)
Hann tekur enga stund að gera og er afar auðveldur. Gott er að bera fram með honum cous cous og salat.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/09/IMG_1439-683x1024.jpg)
Ég mæli með að þið prófið að gera þennan dásemdar kjúklingarétt enda með eindæmum góður og líka hollur og kaloríusnauður.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/09/IMG_1459-683x1024.jpg)
Gulrótarsósan er bragðmikil og þétt í sér og hjúpar kjúklingin svo fallega og gefur réttinum afar ljúffenga áferð.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/09/IMG_1423-683x1024.jpg)
Það hráefni sem ég á oftast til heima eru Rose Poultry kjúklingabringur, Philadelphia rjómaostur og gulrætur og því ekkert mál að hreinlega henda bara í hann enda bara örfá hráefni sem þarf.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/09/IMG_1429-683x1024.jpg)
![IMG_1426](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/09/IMG_1426-585x585.jpg)
Hráefni
- 2 msk spelt eða hveiti
- 1 tsk fínt borðsalt
- 4 stk kjúklingabringur
- 2 msk ólífuolía
- 300 gr gulrætur
- 1 tsk paprikuduft
- 1 tsk kóríander
- 1/2 tsk engiferkrydd
- 1 msk Oscar kjúklingadufts kraftur
- 2,5 dl soðið vatn + 2 msk seinna
- 1 msk sítrónusafi
- 2 msk Philadelphia Light
- söxuð fersk baslika til að dreifa yfir réttinn
Aðferð
- Veltið bringunum upp úr hveiti og hitið olíu á pönnu
- Setjið bringurnar út á heita olíuna og saltið með 1 tsk fínu borðsalti. Steikið í 2 mín á hvorri hlið og takið tímann
- Skrælið gulrætur og skerið í þunnar sneiðar og bætið út á pönnuna ásamt kryddunum þremur og hrærið
- Hafið heitt soðið vatn tilbúið við höndina og setjið 1 msk af Oscar kjúklingakraft í duftformi út á ásamt 2,5 dl af soðnu vatni og sítrónusafa
- Látið suðuna koma upp og lækkið niður í lægsta hita og leyfið að malla saman á pönnuni í eins ug um 10 mín undir loki
- Færið þá bringurnar yfir á disk og setjið gulrætur ásamt safanum á pönnuni í blandara eða matvinnsluvél ásamt 2 msk af vatni og 2 msk af Philadelphia light og maukið vel
- Hellið svo gulrótarsósunni aftur út á pönnuna ásamt bringunum og leyfið að malla í eins og 2-4 mínútur saman
- Raðið bringunum á diska og hellið sósunni vel yfir og stráið ferskri basiliku yfir
- Berið fram með cous cous og einnig er gott að hafa með salat eða soðið spergilkál
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/09/IMG_1421-683x1024.jpg)
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/09/IMG_1445-683x1024.jpg)
Verði ykkur að góðu
María