Pestosnúðar með hvítlauksrjómaostakremi

höf: maria

-Samstarf-

Það eru þrjár uppskriftir á blogginu mínu sem saman hafa slegið í gegn í ýmsum veislum eða viðburðum.

Þessar þrjár uppskriftir eru í miklu uppáhaldi hjá mér sjálfri og geri ég þær ansi oft ef ég á von á gestum, í veislur eða við ýmis önnur tilefni.

Þetta eru uppskriftirnar kaldhefað brauð, hvítlauksrjómaostur og grillaðar paprikur á spænskan máta. Ef þú vilt skoða þær þarftu bara að ýta á nafnið hér að ofan.

Þessir snúðar mætti segja að sameini þessar þrjár uppskriftir í eina. Kannski ekki alveg eins en svo sannarlega líkt og alls ekki síðra.

Það er þó minni fyrirhöfn að gera snúðana því þar þarf ekkert annað að gera en að hnoða í þetta dásamlega deig og gera hvílauksrjómaostinn upp úr tilbúnum rjómaosti.

Í fyllinguna notaði ég pesto frá Filippo Berio sem er svipað og grillaðar spænskar paprikur en það er einmitt gert úr kolagrilluðum paprikum.

Og til að einfalda lífið enn meira setti ég bara hvítlauksrif út í Philadelphia ost ásamt salti og steinselju og útkoma varð mjög svipuð þessum heimatilbúna.

Ef þig langar í einhverja nýbreytni og skemmtilega öðruvísi gott þá eru þessir snúðar alveg málið. Best er að bera þá fram nýbakaða og heita.

Pestosnúðar með hvítlauksrjómaostakremi

-Samstarf- Það eru þrjár uppskriftir á blogginu mínu sem saman hafa slegið í gegn í ýmsum veislum eða viðburðum. Þessar þrjár uppskriftir… Bakstur Pestosnúðar með hvítlauksrjómaostakremi European Prenta
Serves: 12 snúðar Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Snúðadeig

  • 240 gr eða 2,5 dl ilvolg nýmjólk 
  • 60 gr bráðið smjör 
  • 2 msk hunang 
  • 2 egg 
  • 11 gr þurrger eða eitt umslag 
  • 560 gr hveiti 
  • 1 tsk fínt borðsalt 

Fylling

  • 1,5-2 krukkur Fillipo Berio Chargrilled pepper pesto 
  • Rifinn mozzarella (má sleppa)

Hvítlauksrjómaostur

  • 1 askja eða 200 gr Philadelphia Original rjómaostur 
  • 2-3 hvítlauksrif (2 ef þið viljið ekki mikið hvítlauksbragð, 3 ef þið viljið að hann rífi smá í)
  • Tæplega 1/2 tsk fínt borðsalt (ekki nota gróft)
  • Þurrkuð steinselja

Aðferð

Snúðadeig

  1. Blandið saman volgri mjólk, geri og hunangi og látið standa í eins og 5 mín þar til myndast þykk froða ofan á
  2. Setjið næst hveiti og salt saman í hrærivélarskál og blandið létt saman með króknum 
  3. Brjótið egg í skál og bræðið smjörið 
  4. Kveikjið svo á hrærivélinni við lágan hraða með krókinn á og bætið gerblöndunni við hveitið hægt og rólega, svo næst eggjunum og að lukum smjörinu 
  5. Það verður eins og mjög feitt til að byrja með en haldið áfram að hnoða og aukið svo aðeins hraðann eftir því sem smjörið fer meira inn í deigið 
  6. Hnoðið í eins og 3-5 mínútur eða þar til deigið er orðið silkislétt og hefur rúllað sig kringum krókinn
  7. Leggjið stykki yfir skálina og látið hefast á volgum stað í 30 mínútur 
  8. Gerið rjómaostinn til á meðan með því að hræra mörðum hvítlauksrifum út í hann ásamt salti og steinselju og hræra vel saman

Samsetning

  1. Þegar deigið hefur hefast fletjið það þá út í ferning sem er eins og 1 cm að þykkt 
  2. Smyrjið pesto á ferninginn og rúllið svo deigunu upp eins og þegar maður gerir kanilsnúða (ef þið viljið mikla fyllingu notið þá eins og 2 krukkur en 1,5 ef þið viljið hafa bara temmilegt) 
  3. Ef þið notið rifinn mozzarella dreifið honum þá yfir pestoið í þunni lagi 
  4. Skerið svo í 12 stk snúða og raðið í smurt eldfast mót með smá bili á milli snúðana eða eins og 1 cm á milli 
  5. Setjið stykki yfir mótið og leyfið snúðunum að hefast aftur í 15 mínútur 
  6. Bakið svo við 180 °C hita á blæstri í 20-25 mínútur 
  7. Takið svo snúðana út og leyfið þeim að kólna í eins og 5-10 mínútur og setjið hvítlauksrjómaostakremið strax yfir og berið fram heita

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here