Grillaðir kjúklinga Pinchos með Alioli

höf: maria

-Samstarf-

Pinchos de pollo eða kjúklinga grillspjót minnir mig svo mikið á spænska æsku. Júlí og ágúst eru miklir fiesta mánuðir á Spáni, en fiesta þýðir hátíð.

Fiesta stendur oft yfir í þorpum Spánar í 3-5 daga og eru þær iðulega haldnar úti á torgi þar sem allir dansa, syngja og borða saman auk þess að fullt er um að vera fyrir börn jafnt sem fullorðna.

Pinchos er eitt af því sem er næsta víst að þið munið finna á spænskri fiesta, og var þetta og er enn í mestu uppáhaldi hjá mér þegar ég fer til Spánar.

Alioli er einnig spænskt en það er dásamlegt hvítlauksmayones sem gert er frá grunni og þið munuð ekki trúa hversu auðvelt og skemmtilegt er að gera það. Það þarf samt að eiga töfrasprota til að geta gert alioli.

Það þarf ekki nema fimm hráefni í það og tekur um eins og 5 mínútur að gera. Alioli er fullkomin grillsósa með kjúkling og mörgu öðru. Þið getið farið inn á Instagram hjá mér í highlights og séð þar hvernig ég geri það.

Hvað kjúklinga spjótin varðar þá þurfa þau að liggja í marineringu í eins og minnst 3 tíma, því lengur samt því betri verða þau.

Ég er satt best að segja búin að vera í mörg ár að þróa kryddmarineringu sem er nánast eins og sú sem maður fær á pinchos út á Spáni, og held ég að sé óhætt að segja að það hafi loks fullkomnast !

Hér var eitt hráefni sem ég held að hafi algjörlega gert úrslitavaldið en það er Cai P grillolían. Ég ákvað að prófa að nota hana ásamt nokkrum vel völdum kryddum sem eru oft notuð í spænskri matargerð.

Útkoman var vægast sagt stórkostleg. Kjúklingurinn var fullkomlega kryddaður og fullkomlega meir, og toppaður með alioli var bara fullkomið.

Grillaðir kjúklinga Pinchos með Alioli

-Samstarf- Pinchos de pollo eða kjúklinga grillspjót minnir mig svo mikið á spænska æsku. Júlí og ágúst eru miklir fiesta mánuðir á… Matur Grillaðir kjúklinga Pinchos með Alioli European Prenta
Serves: 4 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Kjúklingaspjót

  • 1000-1200 gr úrbeinuð læri og bringur blandað saman (1 bakki bringur og 1 bakki úrbeinað lærakjöt)
  • 1 dl Caj P BBQ olía Original 
  • 1 dl Filippo Berio Extra Virgin ólífuolía 
  • 1 msk Síróp að eigin vali, ég notaði Agave
  • 1 msk nýkreistur sítrónusafi 
  • 2 tsk fínt salt 
  • 1/2 tsk svartur pipar
  • 1 geiralaus hvítlaukur marin eða 4 hvítlauksrif 
  • 1 tsk hvítlauksduft garlic powder (ath ekki hvítlaukssalt) 
  • 2 tsk laukduft onion powder 
  • 1 tsk paprikuduft 
  • 1/2 tsk kóríander malað (ég notaði Pottagaldra, það er eins og brúnt krydd en ekki þurrkuð kryddjurt)
  • 1 tsk tímian þurrkað
  • 1 tsk oregano þurrkað
  • 1 tsk turmerik 
  • 1 msk Cumin (ekki sama og Kúmen eins og í kringlum)
  • 1/2 tsk cayenne pipar 

Alioli sósa

  • 2 1/2 dl sólblómaolía eða önnur bragðlítil olía
  • 2 hvítlauksrif eða 1/2 geiralaus hvítlaukur 
  • 1 msk nýkreystur sítrónusafi 
  • 1 egg 
  • klípa af salti 

Aðferð

Kjúklingaspjót

  1. Byrjið á að setja olíurnar í skál og hræra þeim vel saman.  Athugið að það þarf að hrista mjög vel Cai P olíuna
  2. Bætið næst sírópinu og sítrónusafanum við og hrærið saman með písk 
  3. Svo er að setja öll kryddin út í og hræra vel saman 
  4. Skerið næst hverja bringu í 4 bita þversum, ekki skera í litla gúllasbita því þá verður það of þurrt í grillun
  5. Leyfið lærakjötinu að vera eins og það er nema ef bitar eru mjög stórir skerið það þá í tvennt
  6. Setjið nú kjúklingin út í marineringuna og hrærið mjög vel saman
  7. Setjið svo í kæli með álpappír eða filmu yfir í minnst 3 klst, því lengur því betra 
  8. Að 3 tímum liðnum eru bitarnir þræddir upp á grillpinna og gott er að hafa smá paprikubita á milli en má sleppa 
  9. Grillið svo spjótin í um 30 mínútur, best að gera fyrst niðri yfir eldinum og setja svo á efri hæðina í lokuðu grillinu til að steikist vel í gegn án þess að verði þurrt kjötið 

Alioli sósa

  1. Inn á Instagram getið þið séð í highlights aðferðina við að gera alioli, mæli með að þið farið þar inn en það þarf að eiga töfrasprota til að geta gert hana
  2. Setjið í djúpt ílát allt sem á að vera í sósunni, skerið bara hvítlaukinn smátt ofan í þarf ekki að merja 
  3. setjið næst töfrasprotann alveg á botninn á ílátinu og ekki hreyfa hann neitt meðan þið byrjið að þeyta 
  4. Haldið töfrasprotanum alveg kyrrum og notið meðalhraða. Þið sjáið fljótt hvernig byrjar að myndast hvítt fallega glansandi mayones 
  5. Þegar er örlítil olía efst en restin er orðin hvít megið þið ýta sprotanum upp og niður í smá stund 
  6. Setjið svo í skál og kælið en gott er að gera sósuna um leið og marineringuna og hafa í kæli jafn lengi 
  7. Berið hana svo fram samhliða grillspjótunum 

Punktar

Oft er notuð ólivuolía á Spáni í alioli en þá mæli ég með bragðmildri ólífuolíu, alls ekki extra virgin. Í grillspjótinn mæli ég með að þið sleppið akkurat engu af kryddunum og séuð ekki að bæta í þau kryddum heldur, marineringin var alveg fullkomin svona og reynið að fara því 100 % eftir uppskriftinni. Uppskriftin af þessum grillmat er einstaklega góð og mjög svo einföld.

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here