Sykurlaus karamelluterta með bananarjóma

höf: maria

-Samstarf-

Hér er dásamlega góð og silkimjúk sykurlaus rjómaterta með bananarjóma og karamellubráð.

Það mun engin trúa að hér sé um að ræða sykurlaust gúmmelaði enda dýrindis góð rjómaterta, sem gefur sætum rjómatertum ekkert eftir.

Hér notaði ég sykurlausar rjómakaramellur frá Werther´s sem eru svo góðar að það er engin munur á þeim sykurlausu og sætu.

Ég notaði karamellurnar bæði til að hella ofan í göt á svampbotninum, sem er fisléttur og silkimjúkur og gefa honum smá raka, og eins til að setja ofan á tertuna.

Nátturulega sætur bananarjóminn setur svo sitt bragð á þessa góðu rjómatertu sem enginn ætti að vera svikin af.

Sykurlaus karamelluterta með bananarjóma

-Samstarf- Hér er dásamlega góð og silkimjúk sykurlaus rjómaterta með bananarjóma og karamellubráð. Það mun engin trúa að hér sé um að… Hollusta Sykurlaus karamelluterta með bananarjóma European Prenta
Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 4 egg (aðskilja hvítur og rauður)
  • 110 gr Strásæta sweet like sugar (fæst í Bónus m.a) 
  • 4 msk vatn 
  • 4 msk ólífuolía 
  • 2 tsk lyftiduft 
  • 140 gr hveiti 
  • 1 tsk vanilludropar 
  • 1/2 tsk salt 

Karamellubráð 

  • 2 pokar eða 160 gr af sykurlausum Werther´s rjómakaramellum (sugar free Creamy toffees)
  • 1 tsk rjómi 
  • 2 msk rjómi (til að þynna eftir á) 
  • 1 tsk gróft salt 

Bananarjómi

  •  1 peli eða 250 ml rjómi 
  • 1 banani 
  • 1/2 tsk lyftiduft 

Aðferð

Svampbotnar

  1. Aðskiljið eggjahvítur og rauður 
  2. Stífþeytið eggjahvíturnar og þegar þær eru byrjaðar að stífna bætið þá srásætunni smátt og smátt saman við meðan stífþeytnar alveg
  3. Hafið lágt stillt hrærivélina meðan þið bætið út í stífþeyttu hvíturnar eggjarauðunni, vatninu, olíunni og vanilludropunum og hrærið  létt saman
  4. Slökkvið á vélinni og sigtið hveiti, salt og lyftiduft út í skálina og kveikjið á lágri stillingu meðan allt blandast rétt svo saman og slökkvið þá strax aftur 
  5. Spreyjið tvö 21-24 cm hringform með Pam spreyi og skiptið deiginu jafnt á milli formana 
  6. Bakið svo við 175 °c blástur í 17 mínútur 
  7. Stingið hníf í miðja kökuna þegar hún á að vera fullbökuð og ef hann kemur hreinn upp úr er hún til 

Karamellubráð

  1. Bræðið 2 poka af Werther´s karamellum í potti við vægan hita ásamt 1 tsk af rjóma og 1 tsk af grófu salti
  2. Takið tæplega helmingin af bræddu karamellunni og þynnið með 2 msk af rjóma 

Bananarjómi

  1. Þeytið rjómann með 1/2 tsk af lyftidufti 
  2. Stappið 1 banana vel og bætið varlega saman við rjómann með sleikju 

Samsetning 

  1. Stingið nokkur göt í kökubotnana með sogröri (þessi aðferð kallast poked cake á ensku) botnarnir eiga að vera alveg búnir að kólna úr ofninum þegar þetta er gert
  2. Takið útþynnta helmingin af karamellunni og hellið yfir sitthvort botninn þannig að það renni ofan í götin, gerið þetta varlega og passið að leki ekki út fyrir botnana
  3. Setjið svo annan botninn á kökudisk og rjómann ofan á, leggjið svo hinn botninn ofan á rjómann 
  4. Hellið að lokum þykkari helmingnum af karamellubráðinni yfir kökuna varlega en gott er að vera búin að leyfa karamellunni smá að kólna og þykkna áður en þetta er gert 
  5. Kakan er betri ef hún er látin standa eins og í  2 tíma í kæli áður en hennar er neytt og jafnvel lengur 

 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here