Snickerstertan sem var saknað

höf: maria

Þegar við Gabríela vorum bara tvær fórum við oft í bakarí í Hafnarfirði sem hét Fjarðarbakarí. Þar fengum við okkur alltaf svo ofboðslega góða snickerstertusneið.

Bakaríið var lagt niður því miður og tertan féll í gleymskunnar dá, þar til síðustu helgi að Gabríelan mín byrjaði að kreiva þessa blessuðu köku úr fortíðinni.

Enda ekki skrítið, hvernig er hægt að gleyma svona tertu endanlega ? Jú nú voru góð ráð dýr og ákvað ég því bara að enduskapa þessa góðu tertu og baka hana sjálf.

Ég gerði tvær tertur, á sinnhvorn mátann, til að meta hvor væri betri og gefa ykkur svo uppkskrift af þeirri sem fékk vinninginn. Þessi vann með yfirburðum eða 3-1.

Mjúkur svampbotn, sætur rjómi með súkkulaðibitum og sölt karamella með salthnetum ofan á, sem lekur til hliðana og bráðnar í munni….umm namm….getur ekki klikkað.

Snickerstertan sem var saknað

Þegar við Gabríela vorum bara tvær fórum við oft í bakarí í Hafnarfirði sem hét Fjarðarbakarí. Þar fengum við okkur alltaf svo… Bakstur Snickerstertan sem var saknað European Prenta
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Svampbotn: 

  • 2 egg
  • 90 gr sykur (30 gr og 60 gr)
  • 4 msk mjólk
  • 20 gr ósaltað smjör
  • 1 tsk lyftiduft
  • 65 gr hveiti
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1/2 tsk salt
  • 1/4 tsk cream of tartar eða vínsteinslyftiduft 

Rjómalag á milli:

  • 4,5 dl rjómi þeyttur (eða restin af 500 ml fernu þegar búið er að taka af fyrir karamelluni)
  • 1/2 tsk cream of tartar
  • 50 gr flórsykur
  • Dökkir súkkulaðidropar skornir smátt 1/2- 1 dl (magn eftir smekk)

Karamella ofan á: 

  • 300 gr eða tveir pakkar af Walkers salted caramel toffees (fást í Bónus)
  • 1/2 dl rjómi og 1/2 dl nýmjólk
  • 1 tsk gróft salt (verður að vera gróft)
  • 2 dl salthnetur

Aðferð

Svampbotn: 

  1. Hitið saman í potti smjör, mjólk og 30 gr af sykrinum  þar til sykurinn er alveg bráðnaður
  2. Aðskiljið næst hvítur og rauður og setjið til hliðar meðan blandan rétt kólnar
  3. Setjið næst blönduna í skál og bætið við einni eggjarauðu í einu og hrærið í fimm sekúndur. Hér er alveg nóg að hræra deigið saman með písk, þarf ekki handþeytara né hrærivél
  4. Sigtið svo út í skálina hveiti, lyftidufti og cream of tartar og setjið salt út í og hrærið saman með písk
  5. Leggið til hliðar og stífþeytið eggjahvíturnar, vanilludropa og 60 gr af sykrinum þar til orðið alveg stíft
  6. Þá er eggjahvítunum bætt út í deigið ofurvarlega með sleikju þar til allt er vel blandað saman
  7. Setjið í 26 cm form og bakið í 20-25 mínútur við 185 C°blástur
  8. Kælið alveg áður en sett er á botninn

Rjómalag á milli:

  1. Hellið rjóma í hrærivélarskál og setjið flórsykur og cream of tartar út í
  2. Þeytið þar til rjóminn er vel stífur
  3. Skerið súkkulaðidropana örlítið smærri ef þeir eru stórir en ef þið finnið litla sleppið því þá
  4. Hrærið súkkulaðidropunum varlega við rjómann með sleikju eða sleif

Karamella ofan á:

  1. Setjið rjóma, mjólk, salt og karamellur saman í pott við miðlungshita og bræðið saman
  2. Passið vel að brenna ekki og verið dugleg að hræra reglulega í meðan bráðnar saman
  3. Þegar allt er vel brætt saman, takið þá af helluni og setjið þunnt lag af karamellu yfir svampbotnin til að bleyta hann aðeins en gott er að vera búið að stinga göt á botninn á nokkrum stöðum með prjón eða hníf svo karamella leki ofan í. Notið samt ekki of mikið af henni bara örþunnt lag
  4. Bætið svo salthnetunum út í restina af karamelluni í pottinum
  5. Látið kólna þannig mesti hitinn er farinn úr en má ekki vera orðin alveg stíf, svo hægt verði að dreyfa henni yfir rjómann

Samsetning:

  1. Þegar þið eruð búin að dreyfa karamellu yfir botninn setjið þá þeytta rjómann á hann. 
  2. Gott er að setja botninn í ísskap með rjómanum á meðan verið er að gera karamelluna ofan á svo hann sé orðinn kaldur og stífur
  3. Þegar karamellan hefur kólnað þannig að mesti hitinn er farin úr en samt enn fljótandi þá skuluð þið dreifa henni vel yfir rjómann og passa ykkur að setja kökuna svo beint í kalda hillu í kælinum því rjóminn gæti aðeins bráðnað
  4. Tertan er langbest þegar hún er aðeins búin að fá að vera samsett í nokkrar klst og jafnvel enn betri daginn eftir

Punktar

Passið vel að karamellan nái að kólna eins mikið og hægt er án þess þó að verða það stíf að ekki sé hægt að dreifa henni yfir rjómann. Passið að stinga kökunni beint í kæli eða jafnvel frysti um leið og karamellan er komin á svo hún bræði ekki rjómann. Það bráðnar aðeins fyrst en ekki hafa áhyggjur hann stífnar um leið og hann fer inn í kælinn. Tertan er langbest þegar hún er aðeins búin að fá að vera samsett í nokkrar klst og jafnvel enn betri daginn eftir eins og með margar rjómatertur.

Ómótstæðileg namm, og endilega fylgið mér á Instagram 

Knús

María 

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here