Alvöru belgískar vöfflur Gauffres

höf: maria

Það eru margir sem vita ekki að alvöru Belgískar vöfflur eða Gauffres eins og það er kallað er ekki gert úr hefðbundnu vöffludeigi eins og við þekkjum það.

Í alvöru Gauffres er notað gerdeig með perlusykri sem bráðnar svo í deigið og gerir eins og sæta húð á vöfflurnar sem gerir þær stökkar.

Þið hafið eflaust smakkað belgískar vöfflur erlendis eða jafnvel í Ikea, en þar eru vöfflurnar gerðar á þennan hátt.

Belgískar vöfflur eða alvöru Gauffres eru mun þyngri í sér en þegar gerðar eru vöfflur úr hefðbundnu íslensku vöffludeigi sem er bakað í belgísku vöfflujárni.

Þær eru líka aðeins harðari undir tönn og ólíkt þeim sem eru gerðar með hefðbundnu deigi þá harðna þessar við að kólna í stað þess að linast alveg upp.

Því er best að neyta þeirra beint úr vöfflujárninu en ekki láta þær standa mikið áður. Svo er hægt að taka afgangsvöfflur og hita í 40 sekúndur í örbylgju til að mýkja þær upp aftur og fá eins og nýjar.

Það getur verið erfitt að fá perlusykur hér á landi en ég fann þennan í Fjarðarkaup og hann heitir Svenskt Parlsocker og er svona hvítar perlur eins og er stundum notað á kanilsnúða.

Ef þið finnið hvergi perlusykur má nota grófan hrásykur í staðinn, í aðeins minna magni, en ég gef það upp sem valkost í hráefnis listanum.

Mér finnst langbest að bera þær fram með upphituðu súkkulaðismjöri eins og Nutella eða öðru sem ykkur finnst best og þeyttum rjóma, alveg eins og í Ikea.

Ef þið eruð vön að nota hefðbundið vöffludeig eigið þið eftir að taka eftir að þessar eru meira eins og sætt brauð eða stökkar að utan og mjúkar inní.

Ég mæli með að þið prófið að gera þær, enda ofsa góðar og gaman að prófa eitthvað eins og maður fær í útlöndum, þar sem ekki er hægt að ferðast í augnablikinu.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_0133-683x1024.jpg

Það er ekkert sem góð vaffla getur ekki lagað

Alvöru belgískar vöfflur Gauffres

Það eru margir sem vita ekki að alvöru Belgískar vöfflur eða Gauffres eins og það er kallað er ekki gert úr hefðbundnu… Bakstur Alvöru belgískar vöfflur Gauffres European Prenta
Serves: 8-10 vöfflur Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: Heill hellingur calories 20 grams fat

Hráefni

  • 500 gr hveiti 
  • 1/2 tsk fínt borðsalt 
  • 1 tsk sykur 
  • 10 gr pressuger eða 1 tsk þurrger (mér finnst pressuger betra)
  • 2 dl ylvolg nýmjólk 
  • 225 gr mjúkt smjör skorið í teninga 
  • 2 egg 
  • 1 tsk vanilludropar 
  • 150 gr perlusykur (fékk minn í Fjarðarkaup undir nafninu Svenskt Parlsocker) eða 110 gr grófur hrásykur (verður að vera grófur eins og t.d frá Dan sukker og fæst í Bónus, notið samt bara ef þið finnið ekki perlusykur)

Aðferð

  1. Setjið hveiti og salt saman í hrærivélarskál og blandið létt með króknum 
  2. Setjið svo ylvolga mjólk, ger og 1 tsk sykur saman í aðra skál og látið standa í eins og 5 mín
  3. Bætið svo eggjum og vanilludropum saman við germjólkina og hrærið vel saman með písk eða gaffli 
  4. Kveikjið svo á hrærivélinni og hellið gerblöndunni út í hveitið meðan er að hnoðast 
  5. Setjið svo smjörið í teningum smátt saman við deigið og hnoðið þar til  allt er vel hnoðað saman (athugið að deigið er frekar klístrað og blautt og þannig á það að vera ekki bæta við það hveiti)
  6. Látið deigið hefast í 30 mínútur í skálinni undir stykki 
  7. Þegar deigið hefur hefast er perlusykurinn eða hrásykurinn, hvort sem þið notið, setttur saman við og hnoðað í örlitla stund (ég gerði það bara með höndunum ofan í skálinni)
  8. Deigið á að duga í 8-10 vöfflur svo takið eins og kúlu á stærð við litla brauðbollu og setjið hana á járnið og bakið
  9. Þetta deig er lengur að bakast en venjulegar vöfflur en þær eiga að vera fallega gylltar að lit 
  10. Berið fram með öllu því sem ykkur dettur í hug en með upphituðu súkkulaðismjöri og þeyttum rjóma er laaaangbest 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here