Klessukaka með heimagerðum vanilluís og lakkríssósu

höf: maria

-Samstarf-

Rugl gott, einfalt og enga stund að gera. Er það ekki akkurat þannig sem við viljum hafa það ?

Að minnsta kosti vil ég það enda ekki leiðinlegt að gera eitthvað eins einfalt en sem bragðast svona vel.

Ef þú elskar Walkers karamellur og lakkrís muntu elska þetta tríó því hér eru walkers karamellur með lakkrísbragði í aðalhlutverki.

Hvað er betra en súkkulaði og lakkrís saman ? Við íslendingar alla vega getum státað okkur af að vera lakkrísþjóð.

Hér er þó ekki yfirþyrmandi lakkrísbragð heldur er fullkomið jafnvægi milli súkkulaðis og lakkrís eiginlega bara fullkomið.

Klessukaka með heimagerðum vanilluís og lakkríssósu

-Samstarf- Rugl gott, einfalt og enga stund að gera. Er það ekki akkurat þannig sem við viljum hafa það ? Að minnsta… Bakstur Klessukaka með heimagerðum vanilluís og lakkríssósu European Prenta
Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Klessukaka 

  • 70 gr mjúkt smjör 
  • 150 gr púðursykur 
  • 1 egg
  • 1 tsk vanilludropar 
  • 115 gr hveiti 
  • 3 msk kakó 
  • 1/2 tsk matarsódi 
  • 1/2 tsk salt 
  • 100 gr mjólkursúkkulaðidropar 
  • 100 gr hvítir súkkulaðidropar 
  • 10 stk walkers karamellur með lakkrísbragði skornar í 4-6 bita

Ís 

  • 150 gr sykur 
  • 8 stk eggjarauður eða 2 dl 
  • 1/2 líter rjómi 
  • 1 tsk vanilludropar 

Lakkríssósa 

  • 150 gr walkers karamellur með lakkrísbragði
  • 100 gr suðusúkkulaði 
  • 1 1/2 dl rjómi 
  • Klípa af grófu salti

Aðferð

Klessukaka 

  1. Kveikið á ofninum á 180 C°blástur 
  2. Setjið mjúkt smjör, púðursykur, egg og vanilludropa í hrærivélarskál og hrærið saman með hræraranum þar til er orðið létt og ljóst 
  3. Setjið svo, hveiti, kakó, matarsóda og salt og hrærið áfram þar til er komið klístrað deig
  4. Skerið karamellurnar niður í 4-6 bita og bætið út í ásamt súkkulaðidropunum en best er að hræra svo með höndunum eða örstutt í hrærivél því karamellurnar eru harðar 
  5. Bakið í 15-20 mínútur en ég hafði mína í akkurat 18 mín
  6. Best er að bera kökuna fram heita beint úr ofninum með ísnum og heitri sósu

Ís

  1. Þeytið rjómann og leggið til hliðar 
  2. Þeytið næst eggjarauður, sykur og vanilludropa saman þar til er orðið fallega froðukennt og mjúkt og nánast eins og frauð 
  3. Blandið svo eggjarauðufrauðinu saman við rjóman ofurvarlega með sleif þar til er vel blandað saman 
  4. Setjið að lokum í mót, helst sílíkonmót, og frystið lágmark 8 tíma 

Lakkríssósa 

  1. Setjið allt saman í pott yfir meðalhita og leyfið að hitna 
  2. Þegar þið sjáið að súkkulaði er byrjað að bráðna hrærið þá vel í pottinum allan tímann 
  3. Sósan er til þegar karamellur og súkkulaði er alveg bráðnað saman við rjómann og orðið silkimjúkt og slétt 
  4. Berið fram sósuna heita ásamt heitri kökunni og ísnum 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here