Þennan rétt lærði ég að elda í eldhúsinu í Lugros, litla fjallaþorpinu mínu á Spáni.
Í dag býr föðursystir mín þar en hún heitir Paz, eins og föðuramma mín heitin, eða tita Paz eins og við segjum á Spáni (tita þýðir frænka).
Ég hef mest lært af titu Paz og þar næst ömmu að elda spænskan mat og held ég að það sé alveg óhætt að segja að þær tvær séu bestu kokkar sem ég hef hitt, og því ekki amalegt að hafa lært af þeim.
Þessi kjúklingaréttur heitir á spænsku Fritada de pollo, sem í raun þýðir kjúklingapottréttur. Hann má einnig hafa kjúklingalausan, fyrir þá sem kjósa að borða ekki kjöt, en þá kallast hann Pisto.
Þessi réttur er mjög hollur og virkilega bragðmikill og góður. Uppistaðan í réttinum er grænmeti og kjúklingur. Hráefnin fá að njóta sín án þess að vera kæfð í kryddum og gefur það réttinum afar gott bragð.
Það er algjört möst að bera þennan rétt fram með snittubrauði til að dýfa út í sósuna. Sjá hér uppskrift að heimabökuðu snittubrauði.
Ekki skemmir svo fyrir að hafa með grillaðar papríkur á spænskan máta og heimagerðan hvítlauksrjómaost. Tek það fram að það er mjög auðvelt að gera allt þetta.
Hráefni
- 4 kjúklingabringur eða 800-900 gr úrbeinuð læri (mér finnst best að hafa 50/50) þá 400 gr af hvoru .
- 1 Græna Papriku.
- 2 laukar.
- 6-8 hvítlauskrif eða 2 geiralausir hvítlaukar.
- 1 kúrbít.
- 1 dós niðursoðna maukaða tómata.
- 1 msk sykur eða Agave síróp.
- 2-3 msk tómatpúrra
- 1/2 dl ólífuolíu
- Salt og pipar
Aðferð
- Skerið allt grænmetið í smáa bita og kjúklinginn í gúllasbita. Ekki taka húðina af kúrbítnum.
- Setjið ólifuolía á pönnuna og hitið
- Byrjað er á að steikja laukinn og merja hvítlaukinn útí olíuna. Best er að hafa lágan hita og láta laukanan meira soðna en steikna. Saltið létt yfir því það kemur í veg fyrir að laukurinn brenni.
- Steikið laukana þar til þeir eru orðnir mjúkir og soðnir.
- Því næst er paprikan sett út á pönnuna og steikt þar til orðin mjúk og glansandi. Svo er kúrbítnum bætt við og allt saltað létt yfir aftur og piprað.
- Þegar þetta er allt orðið mjúkt og fínt má kjúklingurinn fara hrár út í. Trúið mér hann verður miklu safameiri og bragðbetri heldur en ef hann er steiktur áður.
- Hrærið öllu saman á pönnuna og leyfið kjúklingnum aðeins að taka á sig hvítan lit. Saltið aftur yfir eina umferð og piprið létt.
- Að lokum er sett yfir allt niðursoðnu tómatana, 2-3 msk af tómatpúrru og 1 msk. af sykri, eða annari sætu, til að gefa tómatbragðinu meiri dýpt
- Þessu er svo öllu hrært varlega saman og látið byrja að sjóða
- Mikilvægt er að passa að rétturinn brenni ekki við botninn á pönnunni og því er best að leyfa honum að malla á vægum hita en passa að missa ekki niður suðuna heldu að hann sjóði allan tímann
- Rétturinn er tilbúinn þegar tómatsósan hefur fengið á sig djúprauðan lit og allt vatn er að mestu leyti gufað upp. Því lengur sem rétturinn fær að sjóða því betra. Mæli þó með að láta hann aldrei sjóða styttra en 35 mínútur en sósan á að vera svona klístruð og djúprauð.
- Þegar réturinn er sem næst því að vera tilbúinn þá er gott að smakka á honum og salta eftir þörfum ef vantar
Punktar
Ekki skemmir svo fyrir að hafa með grillaðar papríkur á spænskan máta og heimagerðan hvítlauksrjómaost. Tek það fram að það er mjög auðvelt að gera allt þetta.
Ég mæli hiklaust með að þið prófið þennan rétt því hann er mjög einfaldur að gera og bragðast alveg sjúklega vel.
Verði ykkur að góðu.
María
6 Athugasemdir
Mmm girnilegt ,ætla að prófa að gera þennan!
já þér finnst hann örugglega góður 🙂
Var með þennan rétt í kvöld rosalega góður mæli hiklaust með honum.
Æ en æðislegt að heyra 🙂 Hann er einmitt einn af mínum uppáhalds
María hefur þú prufað að gera þetta án kúrbíts ☺️ Hvað myndir þú nota í staðinn við erum ekki hrifin af kúrbít á heimilinu ?
Hæ elsku Laufey
nei hef ekki prófað án kúrbíts en ég held að það sé alveg óhætt að sleppa honum alveg og setja bara allt hitt sem á að vera 🙂
Myndi bara prófa að sleppa honum