Pan con tomate y jamon

höf: maria

Hér er ein örstutt en svo ofboðslega góð uppskrift að ég gat ekki sleppt því að setja hana inn á síðuna.

Pan con tomate y jamon eða brauð með tómat og hráskinku er eitthvað sem allir sem hafa komið til Spánar hljóta að hafa smakkað.

Hér erum við ekki að tala um brauð með tómat á hefðbundinn hátt eins og við á Íslandi myndum gera eða í sneiðum…

Neeeeeiiiiiii þetta er sko allt önnur aðferð sem Spánverjar gera og er eitt af mínu uppáhalds í spænskri matargerð. Þið munið ekki trúa því hvað þetta er gott.

Pan con tomate á Spáni eða brauð með tómat þýðir að þá er búið að maka innihaldi tómatsins á brauðið og setja svo gæðaólífuolíu og salt yfir.

 Eitt og sér er þetta oft borðað í morgunmat með ristuðu baguette eða ciabatta, en að setja síðan gott álegg eins og chorizo eða hráskinku ofan á toppar þetta alla leið.

Pan con tomate y jamon

Hér er ein örstutt en svo ofboðslega góð uppskrift að ég gat ekki sleppt því að setja hana inn á síðuna. Pan… Spænskur matur Pan con tomate y jamon European Prenta
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • Gott súrdeigsbrauð fínt eða Baguette eða Ciabatta
  • Vel græna extra Virgin ólífuolíu
  • Vel þroskaða eldrauða dísæta tómata
  • Hráskinku

Aðferð

  1. Mér finnst rosa gott að rista brauðið en þess þarf ekki ef þið eruð með nýbakað brauð með stökkri skorpu
  2. Skerið tómat í tvennt og kreistið innihaldinu úr honum yfir brauðsneiðina og makið því svo á með sárinu á tómatinum þar til tómaturinn er alveg tómur
  3. Hellið svo ögn af ólífuolíu yfir tómatmaukið og saltið létt yfir
  4. Setjið svo áleggið á og ég lofa þið munið gera þetta aftur og aftur og aftur..........

Verði ykkur að góðu

María 

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here