Tarta de San Marcos, uppáhalds spænska rjómatertan mín

höf: maria

Þessi terta er mín allra allra uppáhalds terta frá Spáni. Ég man mörg afmælin mín úr æsku þar sem þessi terta var á boðstólnum, en hún er alltaf keypt í bakaríi fyrir afmæli í fjölskyldu minni á Spáni.

Enda ekki að furða hún er bara svo afskaplega góð og svo afskaplega spænsk.

Mig hefur lengi dreymt um að gera þessa köku heima en það sem vafðist alltaf fyrir mér var hvernig ætti að gera það sem gerir kökuna svona afskaplega góða eða gúmmelaðið ofan á henni, sem kallast Yema quemada.

Einhverra hluta vegna vafðist þessi partur alltaf fyrir mér og í öll þessi skipti sem ég hef farið til Spánar, gleymdi ég alltaf að spyrjast fyrir í bakaríi.

Efsta lagið er mjög svipað og Créme Brulee á bragðið, eða svona eins og brenndi sykurinn nema bara mjúkt. Tertan er síðan fyllt með ofboðslega góðu kremi sem er aðallega gert úr rjóma og ég lofa, þetta er svoooooo gott.

Svo gott að ég náði ekki einu sinni einni sneið af þessari köku sem þið sjáið á myndunum, það fljótt hvarf hún ofan í fólkið.

Loks lét ég verða af því að spyrjast fyrir í bakraríi á Spáni, í nýjustu ferð minni þangað, hvernig ætti að gera þetta ofan á. Þið eruð svo heppin að ég ætla að deila með ykkur þessari dásemdaruppskrift af tertu sem engan svíkur.

Ég lofa að þessi uppskrift er ofboðslega auðveld og fljótgerð og þið munuð varla trúa því hvað er létt að gera svona góða  tertu.

Það eina sem er mikilvægt að eiga er brennari til að brenna sykurinn ofan á, en hann er orðið hægt að fá mjög ódýran jafnvel í matvöruverslunum.

Tarta de San Marcos, uppáhalds spænska rjómatertan mín

Þessi terta er mín allra allra uppáhalds terta frá Spáni. Ég man mörg afmælin mín úr æsku þar sem þessi terta var… Bakstur Tarta de San Marcos, uppáhalds spænska rjómatertan mín European Prenta
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Svampbotn

  • 2 egg
  • 70 g sykur
  • 30 g hveiti
  • 35 g kartöflumjöl
  • 1 tsk lyftiduft

Safi úr niðursoðnum perum í dós til að bleyta svampbotnana: Notið eingöngu safann til að bleyta í svampbotnunum áður en sett er á þá kremið, ekki nota ávextina sjálfa

Fylling

  • 750 ml rjómi
  • 200 gr flórsykur
  • 3 msk bökunarkakó
  • 1/2 tsk Cream of Tartar

Yema quemada (efsta lagið á tertunni)

  • Tvö egg
  • 10 gr Maizena mjöl
  • 140 gr strásykur
  • 60 ml vatn
  • Aukasykur ofan á til að brenna

Aðferð

Botnar:

  1. Eggin þeytt vel og sykri síðan bætt við meðan er að þeytast
  2. Egg og sykur þeytt mjög vel þar til það er orðið ljóst og loftkennt þá er slökkt á hrærivélinni
  3. Hveiti, lyftiduft og kartöflumjöl er svo sigtað saman út í skálina.
  4. Blandið varlega við deigið með sleif, passið að hræra ekki á fullu heldur blanda mjög varlega saman með sleifinni svo loftið  fari ekki úr, þannig verður svampbotninn léttur og svampkenndur
  5. Deigið er svo sett í smurt tertuform. Ég notaðist við 21 cm form (sker svo svampinn fyrir miðju til að fá tvö örþunna botna)
  6. Ef þið viljið nota stærra form ráðlegg ég ykkur að tvöfalda uppskriftina af svampbotninum og setja í tvö stærri form eins og 26 cm en hún verður minni um sig og hærri með 21 cm forminu
  7. Bakið í 12-17 mínútur (byrjið á 12 mínútum). Fyrstu 5 mínúturnar er deigið bakað við 200°C en síðan við 185°C restina af tímanum með blæstri
  8. Stingið í miðjan botninn með prjón og ef ekkert kemur á prjóninn er botninn tilbúinn ef deig kemur á hann er gott að bæta við þessum 5 aukamínútum

Fylling:

  1. Setjið í hrærivélarskál rjóma, flórsykur og cream of tartar
  2. Þeytið vel þar til rjóminn er orðinn stífur
  3. Skiptið þá kreminu í tvennt
  4. Hafið annan helminginn eins og hann er og bætið 3 msk af bökunarkakó í hinn helminginn og hrærið varlega saman sem sleikju
  5. Geymið í ísskáp meðan næsta skref er gert

Yema Quemada krem:

  1. Brjótið eggin í skál og hrærið vel í með gaffli
  2. Setjið svo eggin í gegnum sigti til að taka alla köggla
  3. Bætið svo restinni af innihaldsefnunum í skálina og hrærið mjög vel þar til allt er leyst upp og blandað vel saman
  4. Setjið þá allt saman í pott og látið byrja að sjóða en hrærið stöðugt í á meðan, og líka meðan er að sjóða
  5. Blandan á að þykkna dáldið vel en þegar hún er orðin vel þykk er gott að setja hana í skál og halda aðeins áfram að hræra í smá stund

Tertan sett saman

  1. Byrjið á að skera svampbotninn í tvennt fyrir miðju til að fá tvo þunna örþunna botna
  2. Setjið nú annan helminginn á disk og dreitlið perusafa yfir (passa ekki samt drekkja honum bara dropa yfir hér og þar)
  3. Sprautið eða smyrjið með hníf hvíta kreminu á botninn
  4. Setjið svo súkkulaðikremið þar ofan á
  5. Dreitlið svo smá sykurvatni á hinn helmingin af svampinum og leggið ofan á súkkulaðikremið
  6. Smyrjið svo Yema quemada kreminu ofan á
  7. Stráið að lokum strásykri ofan á efsta lagi og brennið með brennara, setjið þykkt lag af sykri og brennið vel
  8. Skreytið svo eins og ykkur lystir eða bræðið smá dökkt súkkulaði og látið ofan á eins og þræði ef þið viljið

 

Punktar

Þessi terta var svona minni og hærri en hægt er að gera hana í hefðbundinni stærð þá með 26 sm formum. Til þess þarf að tvöfalda uppskriftina af svampbotnunum en ekki tvöfalda hitt sem er í uppskrfiftinni eingöngu svampbotnana. Það eina sem er mikilvægt að eiga er brennari til að brenna sykurinn ofan á, en hann er orðið hægt að fá mjög ódýran jafnvel í matvöruverslunum.

Ég lofa að þessi terta svíkur engan og hana er afar auðvelt að gera !!

knús

María 

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

2 Athugasemdir

hrefna April 23, 2019 - 12:57 am

úr hverju er skreytingin þín ofaná

Svara
maria April 23, 2019 - 11:34 am

Sprautuðu rósirnar eru úr sama kreminu og ég setti á milli, tók bara ögn frá til að skreyta með, ferskjubleiku blómin eru svo sykurblóm sem ég keyptu í búð 🙂

Svara

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here