Brauðréttir klikka aldrei og eru það yfirleitt þeir sem slá í gegn í veislum. Enda ekki skrítið þvi hvað er betra en blanda af góðu brauði, fullt af gúmmelaði og tonn af osti yfir ?
Þennan hef ég margsinnis verið með í veislum og klikkar hann seint. Hér er um að ræða, sveppi, fullt af ostum, beikon, brauð og fullt af góðu gúmmelaði sem blandast saman í töfra.
Það er því algjört möst að bjóða upp á þennan dásamlega rétt í veislu eða jafnvel þegar von er á góðum gestum, en brauðrétti er svo einfalt að gera að allir geta gert þá.
Hráefni
- 1 piparost
- 1 mexico-ost
- ca 100 gr rjómaost
- 4-5 dl matreiðslurjómi
- 1 box af sveppum (250 gr)
- 100 gr pepperoni
- 1 beikonbréf
- 2 dósir sýrður rjómi
- 1/2 fransbrauð, tætt niður
- Ananasdós
- Rifin ost
Aðferð
- Ostarnir og rjóminn eru settir í pott og bræddir, sýrða rjómanum síðan hrært saman við.
- Rífið brauðið niður og setjið í eldfast mót.
- Sveppir og beikon steikt á pönnu og raðað ofan á brauðið.
- Ananas skorin smátt og stráð yfir allt saman
- Pepperoni stráð þar ofan á og ostablöndunni hellt yfir.
- Að lokum er rifnum osti stráð yfir allt og gott er að setja ögn af papríkudufti yfir
- Bakað í ofni við 200°c í u.þ.b. 20-30 mínútur eða þar til allt er orðið gyllinbrúnt
Einfalt og súper gott
Knús
María
2 Athugasemdir
Hljómar æðislega! Má ég spyrja fyrir hvað marga ca þessi réttur er?
Hæ Tara
Ég myndi segja ef þú ert ekki með neitt annað en réttinn þá er hann fyrir c.a 6 manneskjur 🙂
kv María