Dýrðlegt fiski Tacos með Habanero sósu

höf: maria

-samstarf-

Þegar ég sagði fjölskyldumeðlimum að ég ætlaði að gera fiski tacos leist þeim ekkert á hugmyndina. Þar til þau smökkuðu þá breyttist aldeilis í þeim hljóðið.

Þau elskuðu þetta og því verður þetta hér eftir á boðstólnum á þessu heimili. Þetta er mjög sniðug leið til að bæta meiri fisk inn í mataræðið.

Með tacosinu gerði ég dýrindis sósu sem algjörlega toppaði þetta en í henni er mitt allra uppáhalds þessa dagana eða Habanero Tabasco sósa.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_0650-683x1024.jpg

Ég veit ekki hvað það er við Habanero en allt sem inniheldur þennan chilialdinn er bara eitthvað sem ég elska. Þið getið ráðið hversu sterk sósan verður með því að nota meira eða minna af Tabasco.

Þetta er afar auðveld uppskrift, það þarf einungis að steikja fiskinn sem er velt upp úr blöndu af panko raspi og parmesan og guð hvað það er gott.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_0628-683x1024.jpg

Sósan og salatið er síðan afar einfalt að gera en öllum hráefnum er bara hrært saman í skál, í sitthvoru lagi auðvitað.

Hér notaði ég mjúkar tacos kökur frá Mission en vefjurnar frá þeim eru í algjöru uppáhaldi hjá mér en ég notaði þær bæði í BBQ twisterinn og Box masterinn.

Ég mæli með að þið prófið að gera þetta tacos en eins og ég segi er það afar ljúffengt og gott og skemmtilegt að borða.

Dýrðlegt fiskitacos

-samstarf- Þegar ég sagði fjölskyldumeðlimum að ég ætlaði að gera fiski tacos leist þeim ekkert á hugmyndina. Þar til þau smökkuðu þá… Lítið og létt Dýrðlegt fiski Tacos með Habanero sósu European Prenta
Serves: 4-6 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Fiskurinn

  • 500 gr ýsa 
  • 1 dl hveiti 
  • 3 egg 
  • 2 msk rjómi
  • 1 bolli panko rasp (ath ekki sama og paxo rasp passa það)
  • 1 bolli rifinn parmesan ostur 
  • salt 
  • pipar 

Hrásalatið 

  • 1/4 haus ferskt rauðkál 
  • 1/4 - 1/2 kínakálshaus 
  • 2 avocado 
  • 1/2 box piccolo tómatar eða aðrir smátómatar 
  • 1/2 rauðlaukur 
  • 1 stk mexíko ost 
  • 1 lítil dós ananas 
  • safi úr 1/2 lime 
  • salt 
  • pipar

Sósan 

  • 1 dós sýrður rjómi 
  • 1/2 bolli majónes eða 200 gr 
  • 2 tsk lime safi 
  • 1 msk ananassafi úr ananas dósinni 
  • 1 tsk hvítlauksduft (ath ekki hvítlaukssalt, heitir garlic powder)
  • 1 tsk laukduft eða onion powder 
  • 1/2 tsk cumin (ath ekki kúmen eins og í kringlum)
  • 1 tsk timian þurrkað
  • 25 dropar Tabasco sósa með habanero 
  • 1/2 tsk fínt borðsalt 
  • svartur pipar 

Annað

  • 1 askja Philadelphia ostur Original 
  • 1-2 pakkar af mjúkum tacos kökum (mæli með frá Mission street food)
  • Osta Nachos (ég notaði frá Maarud)

Aðferð

Fiskurinn

  1. Gott er að byrja á að gera hrásalatið og sósuna og láta ýsuflakið liggja á eldhúspappír á meðan til að ná mesta raka úr
  2. Þegar salat og sósa er til skerið þá fiskinn í litla ferninga á stærð við gúllas bita
  3. Setjið hveiti á einn disk, egg, rjóma, salt og pipar á annan og panko blandað með parmesan á þriðja og hrærið vel í eggjablöndunni
  4. Byrjið á að velta fiskinum upp úr hveitinu og hristið allt umframhveiti af
  5. Veltið næst upp úr eggjunum og hristið umframegg af
  6. Veltið svo síðast upp úr Panko parmesan blöndunni
  7. Raðið stykkjunum á disk við hlið hvor annars, en ekki ofan á hvort annað, og hitið góða olíu á pönnu 
  8. Steikið svo fiskinn á pönnuni í vel heitri olíunni þar til hann er orðin gylltur og fagur
  9. Þegar hann er tekinn af pönnunni er gott að leggja hann á disk með eldhúspappa á til að olían leki í pappann

Hrásalatið

  1. Skerið rauðkálið mjög smátt eða rífið það niður með rifjárni, skerið líka kínakálið mjög smátt ásamt lauknum
  2. Blandið saman í skál 
  3. Rífið niður mexíkó ostinn, skerið tómatana í tvennt til þrennt og avókadóið í smáa bita 
  4. Bætið þessu saman við salatið en ekki hræra alveg strax 
  5. Takið næst ananasinn upp úr dósinni og skerið afar smátt og gott er að stappa hann smá með gafflinum, geymið safann í dósinni
  6. Hellið nú ananasnum út í skálina, saltið, piprið og kreistið lime safann yfir allt 
  7. Hrærið nú öllu vel saman í skálinni og leggjið til hliðar

Sósan

  1. Hrærið saman majónesi og sýrðum rjóma 
  2. Bætið svo kryddum ásamt salti og pipar út í og hrærið vel 
  3. Bætið svo ananassafa, tabasco sósu og lime safanum út í og hrærið. Gott að geyma í ísskáp þar til hún er borin fram og þið megið líka bæði minnka eða auka við tabasco sósuna eftir því hversu sterka þið viljið hafa hana, mín var ekki neitt rífandi sterk 

Tacos samsetning

  1. Takið eina mjúka tacos köku og hitið hana ef þið viljið örstutt í örbylgju (ég sleppti því þar sem þær eru svaka mjúkar) 
  2. Smyrjið svo góðu lagi af Philadelphia osti yfir kökuna 
  3. Þekjið hana næst með hrásalatinu og setjið fiskinn ofan á salatið 
  4. Brjótið smá ostanachos yfir og setjið hvítu sósuna að lokum ofan á 
  5. Gott er svo að hafa tabasco sósuna með til hliðar fyrir þá sem vilja enn meira sterkt 
  6. Ef þú elskar kóríander má hafa það líka með, en ég sleppi því alltaf enda ekki með kóríander genið

Vissuð þið að þessi Tabasco sósa með Habanero fer afar vel með ferskum ananas, mæli með að þið prófið !!

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here