Boxmaster með rösti kartöflu, piparmayo, osti og nachos

höf: maria

-Samstarf-

Uppskriftin af BBQ Twisternum hefur slegið rækilega í gegn hér á blogginu en hana má nálgast hér. Enda ekki að furða þegar hægt er að gera einn vinsælasta skyndibitann heima.

Því fannst mér nú ekki annað koma til greina en að leika Boxmaster eftir líka enda er hann ekki síðri en twisterinn. Þó uppskriftirnar virðist svipaðar þá eru þær samt ólíkar.

Í stað kornflakes þá nota ég hér parmesan ost og ostanachos til að hjúpa kjúklinginn áður en hann er settur inn í ofn. Hér er ekkert steikt né djúpsteikt.

Auðvitað komu svo engar aðrar vefjur til greina í þetta verkefni en þessar frá Mission Wraps með grillröndinni en að mínu mati eru þær allra bestar.

Hér er lítið vesen á ferðinni og þarf í raun ekkert að útbúa nema kjúklinginn og piparmayóið. Rösti kartöflurnar keypti ég bara frosnar frá Aviko en þær eru mjög góðar og fást á mörgum stöðum í frystikæli.

Mér finnst síðan Heinz mayonesið alltaf henta best í þetta piparmayo en það er silkimjúkt og með alveg rétta bragðið fyrir þessa sósu.

Boxmaster með rösti kartöflu, piparmayo, osti og nachos

-Samstarf- Uppskriftin af BBQ Twisternum hefur slegið rækilega í gegn hér á blogginu en hana má nálgast hér. Enda ekki að furða… Aðalréttir Boxmaster með rösti kartöflu, piparmayo, osti og nachos European Prenta
Serves: 6-8 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 1-2 pakkar Mission Wraps vefjur með grillrönd (það eru 6 í pakka) 
  • Aviko Rösti kartöflur frosnar (reiknið með 2 í hvern Boxmaster)
  • 4 kjúklingabringur 
  • 1 poki Maarud ostanachos 
  • 60 gr rifinn parmesan ostur 
  • 3 egg 
  • 2 tsk timian 
  • 1/2 tsk fínt borðsalt 
  • 1 tsk cayenne 
  • 1/2 bolli hveiti 
  • 1 box af smátómötum að ykkar vali 
  • 1 pottur lambahasalat 
  • Auka nachoflögur með ykkar uppáhalds bragði (osta, chili, salti eða papriku sem dæmi)
  • 8 ostasneiðar 

Piparmayo:

  • 3 dl Heinz majónes
  • 1/2 tsk sítrónusafi beint úr ávextinum
  • 1 og 1/2  tsk svartur pipar
  • 1/2 tsk borðsalt 

Aðferð

  1. Setjið nachos og rifinn parmesan í blandara og maukið þar til orðið alveg að dufti 
  2. Setjið hveiti í eina skál og parmesan nachoið í aðra
  3. Hrærið eggjunum saman ásamt salti, cayenne pipar og þurrkað Timian í þriðju skálina
  4. Hitið ofninn á 210-220  C°blástur
  5. Skerið svo bringurnar  þversum í gegn til að gera tvær þunnar bringur úr einni bringu svo úr verði 8 þunnar bringur
  6. Byrjið á að velta kjúklingnum fyrst upp úr hveiti, svo eggi og að lokum upp úr parmesan nachos
  7. Raðið bitunum á ofnplötu með bökunarpappa og setjið svo í ofn í 25-30 mínútur
  8. Bakið Rösti kartöflunar með í jafnlangan tíma á sama hita 
  9. Útbúið grænmetið og piparmayóið á meðan
  10. Skerið tómatana í litla bita og takið svo kálið í sundur úr pottinum 
  11. Í piparmayóið er öllu hrært saman þ.e majónesi, pipar, salti og sítrónusafa
  12. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn lækkið þá ofninn í 180 C° og takið hann út. Setjið næst vefjur saman með því að smyrja á þær piparmajó, setja kál og tómata, 1 bita af kjúkling, 2 rösti og eina ostasneið ásamt nokkrum flögum af nachoi og enn meira piparmayo. 
  13. Brettið botninn af vefjunni upp og hliðarnar yfir botninn, gott er svo að stinga pinna í þær eins og nælu til að halda þeim saman
  14. Setjið svo inn í 180 C°heitan ofninn í 4 -5 mínútur 

Punktar

Kíkið á Videoið hér að neðan til að sjá hvernig Boxmasterinn verður til !!

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

2 Athugasemdir

Sandra October 11, 2020 - 10:08 pm

Þetta er sjúklega gott 👌

Svara
maria October 12, 2020 - 10:36 am

En gaman að heyra takk fyrir það 🙂

Svara

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here