Heitur brauðréttur með ferskjum, beikon, skinku, sveppum og camembert…borið fram með sinnepssósu
Þessi réttur er bara svo bilað góður að ég mátti til með að gera færslu um hann einan og sér þrátt fyrir að hún sé hér inn í annari færslu á vefnum. Nú fær hann sinn eiginn sess hér, enda alveg sló hann í gegn á sínum tíma.
Alltaf þegar ég geri þennan rétt, slær hann í gegn, enda er óhætt að segja að hann sé klikkað góður og já ég skef ekkert ofan af því.
Það sem má hins vegar alls ekki klikka á er að gera sinnepssósuna með, en án hennar er hann ekki næstum eins góður.
Raggi maðurinn minn sér alltaf um að gera réttinn, en þetta er uppskrift sem kemur frá Rósu mömmu hans. Hann er svo ómótstæðilega góður og klárast alltaf upp í hvert skipti sem við höfum hann.
Þessi réttur er alveg geggjaður og mæli ég með honum við hvaða tilefni sem er. Ef ykkur lýst vel á hann ættuð þið að elska þessa uppskrfit hér líka.
Hráefni
- 3/4 fransbrauð
- 1 dós sýrður rjómi
- karrý eftir smekk
- 3-4 msk mayones
- 1 dós ferskjur í dós
- 1 dós sveppir
- 1 bréf af beikon
- 1 bréf skinka
- 1 camembert, brie eða kastala (hvaða hvítmygluostur sem er)
- 1 poki af rifnum osti
- papríkuduft til að strá yfir
Sinnepssósa með réttinum (má alls ekki sleppa og á að bera fram með til hliðar)
- 1 dós af sýrðum með graslauk (þessi í grænu dósunum)
- 2 msk hunang
- 3 msk sætt sinnep
Aðferð
- Rífið brauð í eldfast mót og hellið safanum af sveppunum og ferskjunum yfir
- Gerið sósu úr 1 dós af sýrðum, 3-4 msk mayonesi og karrý eftir smekk
- Hellið svo sósunni yfir brauðið í mótinu
- Skerið sveppina aðeins niður, skinkuna og beikonið og steikjið á pönnu
- Setjið það svo yfir brauðið með sósunni í eldfasta mótið
- Skerið næst niður ferskjur í sneiðar og raðið fallega yfir allt saman
- Skerið svo ostinn í þunnar sneiðar líka
- Raðið ostinum svo jafnt yfir allt saman í mótinu og stráið að lokum rifna ostinum yfir og kryddið með smá papríkudufti.
- Bakið svo í ofni á 200°C í 30-35 mínútur
Sinnepssósan:
- Þessu er öllu hrært saman.
- Ef ykkur finnst vanta meiri sætu eða sinnep þá bara bætið þið við og smakkið til eftir smekk.
María
Megið endilega fylgja mér á Instagram
4 Athugasemdir
Alveg fràbær rèttur slò ì gegn ì veislunni.
Hvar fèkkstu fatiđ sem rètturinn er ì ?
Kærar þakkir, frábært að heyra 🙂 Fatið er úr Heimahúsinu
kær kv María
Sælar. Ég ætla að búa til þennan girnilega rétt á morgun fyrir konurnar í prjónaklúbbnum Garnaflækjan í Kaupmannahöfn.
Mér líst svo vel á hann en ég hef aldrei verið sérlega góð í að gera heiti rétti en er að reyna að bæta mig 😉
Það er ekkert magn/grömm gefið upp við hráefnin, t.d. sýrði rjóminn. Hér í Dk eru til margar stærðir og fitumagn
Það væri mjög gott að fá ca. magn ef þú ert með það 🙂
Kær kveðja og þakkir
Bogga
Sæl Bogga
Hér er ein dós sýður rjómi 180 gr og ein dós majónes er 250 ml 🙂 Vona að þetta hjálpi eitthvað
kv María