Þessa sósu ættu allir að geta gert enda krefst hún lítils annars en að sulla saman hráefnum í pott og hræra vel. Uppistaðan er sveppir og ostar og útkoman er hreint út sagt dásamleg.
Sósan fer afar vel með kalkún og villibráð. Það eina sem þarf að gera er að skipta út soðkraftinum. Þ.e.a.s að setja kalkúnakraft ef hún er höfð með kalkún eða villibráðarkraft ef hún er borin fram með villibráð.
Hráefni
- 250 gr sveppir
- 40 gr ósaltað smjör
- 1 stk Kryddostur villisveppa
- 2 dl vatn
- 3,5-4 dl matreiðslurjómi
- 1 tsk þurrkað timian
- 1 stk sveppasoðteningur
- 1 tsk kalkúnakraftur fljótandi
- 1 msk rifsberjahlaup
- smá svartur pipar
- 3 msk maizena sósujafnari (ég notaði fyrir brúnar sósur)
Aðferð
- Byrjið á að steikja sveppina þunnt skorna í smjörinu og leggið til hliðar
- setjið vatn í pott, kalkúnakraftinn og sveppasoðteninginn út í þar til teningurinn er alveg uppleystur í vatninu
- Þið getið rifið niður villisveppaostinn eða skorið hann smátt og sett út í vatnið þá bráðnar hann mun hraðar
- Þegar osturinn er alveg bráðnaður saman við bætið þá matreiðslurjóma, timian og rifsberjahlaupi út í og hrærið vel saman þar til byrjar að sjóða
- Þegar suðan er komin upp setjið þá maizena sósujafnarann út í og hrærið vel saman þar til sósan hefur þykknað vel og bætið þá steiktu sveppunum út í sósuna og piprið ögn
- Leyfið sósunni að malla við vægan hita í eins og 10-20 mín
Verði ykkur að góðu
knús
María
2 Athugasemdir
Best á kalkúna ekki kalkúni
takk fyrir ábendinguna 🙂