Hljómar flókið ég veit….en er svo fáranlega auðvelt að þú átt ekki eftir að trúa því. Það liggur við að osturinn geri sig sjálfur svo auðvelt er að gera hann.
Það þarf hins vegar að búa hann til kvöldinu áður, þar sem hann þarf að fá að standa yfir nótt. Ég fékk þessa dásamlegu uppskrift hjá henni Hrönn móðursystur minni fyrir mörgum árum síðan.
Eftir að ég prófaði að gera þennan ost einu sinni varð ekki aftur snúið. Hægt er að nota hann í svo margskonar að það er bara ekki hægt að láta þessa uppskrift fram hjá sér fara.
Ég hef notað hann í ýmsa rétti, til að smyrja snittur með reyktum laxi og steinselju eða spínati. Fyllt hann inn í döðlur vafðar með hráskinku og fleira og fleira….eiginlega bara allt sem mér dettur í hug og aldrei bregst hann !!!
Osturinn fer svakalega vel með kaldhefaða brauðinu og eins snittubrauðinu góða Ég skora á ykkur að prófa að gera ostinn.
Hráefni
- 1/2 líter af rjóma
- 1/2 líter af hreinu skyri (1 stór dós)
- 1 tsk fínt borðsalt
- 4-6 hvítlauksrif (ég nota alltaf 6 en þá er mjög mikið hvílauksbragð af honum)
- Þurrkuð steinselja eftir smekk
Aðferð
- Byrjað er á að setja rjómann og skyrið saman í skál og hræra með písk þar til það er orðið vel blandað saman og silkimjúkt.
- Svo þarf að setja tusku yfir skál og festa með klemmum helst, eða festa tuskuna undir skálina.
- Því næst er blöndunni hellt ofan í tuskuna og sett til hliðar yfir nótt
- Það er best að setja matardisk eða eitthvað fat undir skálina því það getur farið að leka úr ostinum
- Eftir nóttina ætti osturinn að vera stífur og laus við allan vökva og vera þéttur í sér
- Hellið vökanum sem safnast hefur í skálina í vaskinn
- Þá er að taka hann úr tuskunni og setja yfir í aðra skál.
- Bætið svo 1 tsk af fínu broðsalti og 4-6 hvítlauksrif marinn yfir
- Síðast er svo þurrkaðri steinselju sáldrað yfir eftir smekk. Mér finnst best að hafa 6 hvítlauksrif og nóg af steinselju
- Hrærið öllu vel saman þar til osturinn er orðinn silkimjúkur og glansandi. Berið hann fram með snittubrauðinu góða eða kaldhefaða brauðinu.
Punktar
Það er líka í góðu lagi að henda í þennan ost að morgni til ef þið ætlið að hafa hann síðar um daginn, myndi þá láta hann standa í eins og alla vega 5 klst en það sleppur alveg.
Enn betra er að hafa líka grillaðar spænskar papríkur með en uppskriftina má finna hér.
Ég mana ykkur til að prófa þennan ost.
Knús
María
11 Athugasemdir
Hlakka til að prófa 🙂 Takk æðislega fyrir þessa girnilegu uppskrift 🙂
Það var lítið Hekla…verður gaman að heyra hvað þér fannst um ostinn 😉
Er þetta osturinn úr afmælinu? Geggjaður!
Já það passar þessi var í afmælinu 😉
Ég hef prófað þennan hrikalega gódur. Flottar myndir af ferlinu hjá þér !
Takk Hulda 🙂
Sæl læturðu rjóma og skyr blönduna standa á borði yfir nótt?
Já ég hef bæði látið það standa á borði eða bara í ísskáp 🙂
Svo gott inní döðlur og hráskinku !!
Já hefurðu smakkað það hérna hjá mér ? Hef oft gert það en man ekki eftir að hafa leyft þér að smakka 🙂 En já það er sko geggjað <3
[…] 2: Leksands hrökkbrauð, hvítlauksrjómaostur (uppskrift af heimagerðum hér, annars bara keyptur), klettasalat, hráskinka, ferskar fíkjur. Raðið í upptalinni röð og […]