Súper auðveldur Chia grautur

höf: maria

-Samstarf-

Hver elskar ekki að borða hollt sem er samt svo bragðgott að það er eins og maður sé að borða eitthvað óhollt ?

Þessi dásamlegi Chia grautur en nákvæmlega þannig, mér finnst hann svo góður að ég myndi þess vegna hafa hann í eftirrétt.

Eins og flestir orðið vita eru Chia fræ ein þau næringarríkustu fræ sem völ er á, bæði stútfull af vítamínum og omega fitusýrum.

Því er tilvalið að byrja daginn á svona graut og fara stútfullur með tankinn inn í daginn af næringu og góðum trefjum.

Þar sem Chia fræ hafa þann eiginleika að tífalda stærð sína þegar þau blandast við vökva, eru þau afar mettandi og halda manni söddum vel og lengi.

Ég tala nú ekki um ef þið fáið ykkur lífrænt ræktað hnetursmjör, örfáar hnetur og svo ávexti með. Fullkomin og mettandi fæða á nokkrum mínútum.

Ég notaðist við hráefni frá MUNA sem er allt lífrænt ræktað án þess að vera of frekt við budduna. Ég elska að geta keypt lífrænt á viðráðanlegu verði.

Það má gera grautinn fyrirfram eins og kvöldinu áður, eða jafnvel eiga bara inn í ísskáp útbleytt Chia fræin í mjólkurblöndunni til að eiga svo til að setja í krukku eða skál með öllu hinu.

Þar sem tekur ekki nema 10 mínútur fyrir Chia fræin að þenjast út og mýkjast geri ég hann alltaf bara jafnóðum.

Ef þið gerið fyrir nokkra daga getið þið margfaldað uppskriftina en þessi passar í tvo skammta. Svo er snilld að kippa með sér einni krukku í nesti fyrir vinnuna.

Ef krökkunum ykkar finnst þetta gott mæli ég líka algjörlega með að senda þau með svona í nesti í skólann, gæti ekki verið hollara.

Súper auðveldur Chia grautur

-Samstarf- Hver elskar ekki að borða hollt sem er samt svo bragðgott að það er eins og maður sé að borða eitthvað… Lítið og létt Súper auðveldur Chia grautur European Prenta
Serves: 2 Prep Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 2-2,5 dl haframjólk 
  • 1/2 dl chia fræ frá Muna 
  • 1 tsk agave síróp 
  • 1/2 tsk sítrónusafi (má sleppa) 
  • 1/4 tsk vanilludropar 
  • Ristaðar kókósflögur frá MUNA 
  • Sykurlaus jarðaberjasulta (ég notaði frá Good Good)
  • Hnetursmjör frá MUNA (mér finnst betra gróft en ykkar er valið)
  • Kasjúhnetur frá MUNA
  • Hampfræ frá MUNA 
  • Kakónibbur frá MUNA 
  • Kókósbiti frá MUNA (nota spari en má líka sleppa) 
  • Fersk jarðaber
  • Fersk bláber 

Aðferð

  1. Byrjið á að blanda saman haframjólk, agave síróp, sítrónusafa og vanilludropum
  2. Setjið næst chia fræin út í og hrærið vel saman 
  3. Látið standa í minnst 10 mínútur eða yfir nótt þess vegna, í kæli þá
  4. Setjið svo í botninn á krukku eitt lag af ristuðum kókósflögum (getið líka notað glas eða bara skál)
  5. Setjið svo eitt lag af sultu þar ofan á
  6. Setjið svo vel af Chiagrautnum yfir og toppið með hnetusmjörinu, hampfræjunum, hnetum, jarðaberjum, bláberjum og kakónibbum
  7. Spari set ég svo stundum nokkra bita af kókósbita súkkulaðistykkinu ofan á 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here