My Sweet Delí ostakökurnar eru svo mikil snilld til að eiga í frysti ef að óvænta gesti ber að garði, eða ef maður hreinlega er ekki upplagður, hefur ekki tíma í að gera góðan eftirrétt, eða gott með kaffinu.
Kökurnar eru afar ljúffengar einar og sér en að setja þær í sparifötin, gerir þær guðdómlega góðar !!
Í þessari færslu ætla ég að gefa ykkur tvær hugmyndir af því hvernig hægt er að klæða þessar dásamlegu ostakökur upp, á afar einfaldan og fljótlegan máta.
Útkoman verður eins og afar mikið hafi verið haft fyrir þeim.
Hér gefur að líta á Turtle ostaköku með fílakaramellugljáa, pekanhnetum og hindberjum, og svo ostakökuís með heitri Daimsósu.
Namm svooo gott og svoooo einfalt að gera !!
Kökurnar eru ætlaðar fyrir 6 manns og þarf að afþýða í um 2 klst.
Turtle ostakaka með fílakaramellugljáa, pekanhnetum og hindberjum
- Eitt stykki My Sweet Delí ostakaka New york style
- 100 gr fílakaramellur
- 1/2 dl rjómi
- Pekanhnetur
- Hindber
Aðferð
- Hellið 1/2 dl af rjóma í pott við meðalhita og setjið fílakaramellur út í
- Bræðið þar til verður glansandi og kekkjalaus sósa. Hrærið í allan tíman
- Hellið svo beint ofan á kökuna í því magni sem þið viljið. Gott að eiga aukasósu til að hella yfir fyrir þá sem vilja meira
- Myljið svo pekanhnetur með fingrunum yfir, magn eftir smekk
- Toppið með ferskum hindberjum eða ykkar uppáhaldsberjum
- Fyrir forfallna sykurunnendur þá er gott að setja líka uppáhalds karamelluíssósu yfir allt saman
Ostakökuís með heitri Daimsósu
- Eina My Sweet Deli jarðaberjaostaköku
- 1 – 1 og 1/2 líter af vanilluís (ykkar uppáhaldstegund)
- 100 gr eða 1 poki af Daimkurli
- 1/2 -1 dl rjóma
Aðferð
- Brjótið ostakökuna út í ísinn og hrærið gróft saman. Leyfið ostakökuklumpum að njóta sín í ísnum
- Setjið í frysti í 30 mínútur til eina klst
- Setjið í pott við meðal til lágan hita 1/2 dl rjóma og Daimkurlið og bræðið vel saman. Gott að hafa hana örlítið kekkjótta
- Bætið við rjóma ef þið viljið hafa sósuna þynnri
- Berið fram ísinn og heita sósuna með
Verði ykkur að góðu
María
Færslan er kostuð