-Samstarf-
Það þekkja allir hina hefðbundnu eðlu, þessa sem maður borðar með Nachos.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2020/12/IMG_1038-726x1024.jpg)
Þessi eðla hins vegar sameinar allt okkar uppáhald, pizzu og snakk !! Það er ekki hægt að biðja um meira.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2020/12/IMG_1040-683x1024.jpg)
Eðluna er afar einfalt að gera og guð hvað hún er djúsí og góð, löðrandi í osti og pepperóní.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2020/12/IMG_1046-683x1024.jpg)
Að dýfa svo uppáhalds snakkinu ofan í er það besta, bragðmikið og afar gott. Mitt uppáhald er Maarud með salti og pipar.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2020/12/IMG_9875-714x1024.jpg)
Hér er í raun sama aðferð notuð og í hefðbundna eðlu, bara pizzasósa í stað salsa sósu og mun meiri ostur og pepperóni.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2020/12/IMG_1048-683x1024.jpg)
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2020/12/IMG_1051-683x1024.jpg)
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2020/12/IMG_1057-644x1024.jpg)
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2020/12/IMG_1042-740x1024.jpg)
![IMG_1039](https://paz.is/wp-content/uploads/2020/12/IMG_1039-1-585x585.jpg)
Hráefni
- 200 gr Philadelphia Original
- 150 gr Hunts pizzasósa
- 200 gr rifinn Mozzarella ostur
- 10 gr rifinn parmesan ostur
- paprikuduft
- þurrkað oregano
- 35-60 gr pepperóni
Aðferð
- Smyrjið rjómaosti í botninn á eldföstu móti
- Setjið svo pizzasósuna yfir allt
- Dreifið svo rifna ostinum yfir ásamt parmesan ostinum
- Kryddið með paprikudufti og oregano
- Setjið svo pepperoni yfir að lokum en það má líka klippa það í ræmur
- Hitið svo í ofni í 15-20 mínútur á 200 C°blæstri
- Veiðið upp með uppáhalds snakkinu ykkar
Verði ykkur að góðu
María