-Samstarf-
Hér eru tvær tegundir af hummus sem báðir reyndust ferlega góðir og gott betur en það. Heitur sveppahummus og Hummus með grillaðri papriku á spænskan máta.
Mér finnst hummus oft vera frekar bragðdauft og meira eins og leðja en álegg, en þessir eru svo sannarlega ekki þannig.
Hér er bæði áferð og bragð upp á hundrað. Það skiptist alveg í 50/50 með hvor var betri en ég get lofað að þeir eru báðir svaka góðir og mæli ég með að prófa þá bara báða enda lítið mál að gera þá.
Nýja línan frá Sigdal er fullkomin með þessu hummusi en þeir eru komnir með litlar kökur eða crackers í svona munnbita stærð, frábært hollt snakk með þessum hummus.
Crackers kexið kemur í 4 bragðtegundum svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi en ég get fullyrt að þau eru öll svakalega góð.
Sveppahummusin er geggjað góður heitur, toppaður með steiktum hvítlaukssveppum. Ef þið viljið hann ekki heitan er hann líka góður bara kaldur.
Grilluðu papriku hummusin er líka geggjaður en ef þið hafið smakkað pimiento frito eða spænskar grillaðar paprikur sem þið getið fundið uppskrift af hér þá vitið þið við hverju er að búast.
Að toppa eina crackers með sveppahummus og svepp ofan á er bara aðeins of gott, bragðmikið og hollt.
Papriku hummusinn er líka bragðmikill og gefur paprikan í senn gott bragð og smá sætu sem passar svo vel með söltu kexinu.
Sveppa hummusin er gott að toppa með góðri ólífuolíu, fersku timian og steiktum hvítlauks sveppum en það eru líka settir steiktir hvítlaukssveppir í hummusinn sjálfan.
Hráefni
Heitur hvítlauks sveppa hummus með timian
Sveppirnir:
- 250 gr sveppir
- 20 gr smjör til steikingar
- 2 tsk ólífuolía til steikingar
- 3-4 hvítlauksrif marin
- salt og pipar
- 1 tsk þurrkað timian
Hummusinn
- 1 dós eða krukka af soðnum kjúklingabaunum eða 230-240 gr af tilbúnum baunum
- 1 tsk sítrónusafi nýkreystur
- 45 gr tahini
- 1/2 tsk fínt borðsalt
- 1-2 hvítlauksrif
- svartur pipar
- kalt vatn
- ólífuolía til að setja ofan á hummusinn
- Ferkst timian til að toppa með
Grilluð papriku hummus
- 1 stk meðalstór rauð ramiro paprika
- 1 msk hlynsíróp
- 1 dós eða krukka af soðnum kjúklingabaunum eða 230-240 gr af tilbúnum baunum
- 1 tsk sítrónusafi nýkreystur
- 45 gr tahini
- 1/2 tsk fínt borðsalt
- 1-2 hvítlauksrif
- svartur pipar
- kalt vatn
Aðferð
Heitur hvítlaukssveppa hummus með timian
- Setjið smjör og olíu á pönnu og skerið sveppina í þunnar sneiðar
- Steikjið svo sveppina á pönnunni og saltið og piprið ögn og kryddið með þurrkaða timianu
- Þegar sveppirnir eru orðnir dökkir og steiktir merjið þá hvítlauksrifin og setjið á pönnuna í blálokin og hrærið vel við sveppina, bara örlitla stund áður en slökkt er undir, en hvítlaukurinn á bara rétt að soðna ekki verða brúnn
- Slökkvið svo á pönnunni og leyfið því að standa saman meðan hummusin er gerður
- Setjið öll innihaldsefnin í hummusinum saman í blandara eða matvinnsluvél nema vatnið
- Maukið saman þar til verður grófur og bætið þá 1/3 af steiktu sveppunum út í og maukið þar til er orðið að silkimjúku hummusi
- Gott er að nota pulse takkan reglulega og skafa niður með hliðunum
- Notið vatn til að þynna hummusinn í þá þykkt sem þið viljið hafa hann
- Hitið hann svo örlítið upp í potti eða örbylgju svo hann verði aðeins meira en volgur
- Toppið svo með restinni af heitum sveppunum af pönnuni, ólífuolíu og fersku timian
Grilluð papriku hummus
- Byrjið á að stilla ofninn á grill
- Setjið svo paprikuna í efstu hillu á grind í ofninum beint undir grillið
- Fylgist vel með en húðin á að fá á sig svarta brunabletti. Þegar það er komið á einni hlið snúið henni þá og látið koma svarta brunabletti á allar hliðarnar á paprikunni. Þetta gerist fljótt svo verið dugleg að fylgjast með
- Setjið svo paprikuna á disk og hvolfið skál yfir meðan hummusin er gerður
- Setjið öll innihaldsefnin í hummusinum saman í blandara eða matvinnsluvél nema vatnið
- Maukið saman þar til verður grófur
- Takið þá paprikuna og flysjið af henni hýðið en það fer auðveldlega af með puttunum og fræhreinsið hana
- Bætið henni út í blandarann og maukið þar til er orðið að silkimjúku hummusi
- Gott er að nota pulse takkan reglulega og skafa niður með hliðunum
- Notið vatn til að þynna hummusinn í þá þykkt sem þið viljið hafa hann
Verði ykkur að góðu
María