-Samstarf-
Hér gefur að líta afar einfalt kakó sem hentar vel í útileguna í sumar. Það má samt líka vel gera bara heima fyrir góðar stundir.
Í kakóið sjálft þarf ekki nema 3 hráefni, niðursoðna dósamjólk, vatn og bökunarkakó. En síðan er mjög gott að toppa það með rjóma og eða sykurpúðum.
Í útilegu er alveg tilvalið að hafa grillaða sykurpúða með og sprauturjóma, en ef gert er heima mæli ég með að hafa ekta þeyttan rjóma og súkkulaði spænir.
Þar sem dósamjólkin er dísæt þarf ekki að bæta við sykri þó maður noti bökunarkakó en mér finnst Cadbury kakóið henta best í þennan drykk, enda allt súkkulaði frá þeim með því betra sem ég hef smakkað.
Hér er ekkert vesen á ferðinni, bara henda dósamjólk í pott á prímusinn og bæta vatni og kakó saman við. Grilla nokkra sykurpúða og málið dautt.
Kakóið er frekar sætt og því hentar það vel með eins og einhverju minna sætu, eins og góðri samloku eða jafnvel með grilluðum pylsum en hver elskar ekki kókomjólk með pylsu ??
Hráefni
- 1x 305 ml niðursoðin dósamjólk (condensed milk)
- vatn
- 5 msk Cadbury bökunarkakó
- Sykurpúðar
- sprauturjómi eða venjulegur þeyttur rjómi
- Súkkulaðispænir (má sleppa)
Aðferð
- Hellið dósamjólkinni í pott
- Fyllið svo dósina af mjólkinni 2 x af vatni og hellið saman við
- Bætið svo 5 msk af kakó út í og hrærið vel
- Grillið sykurpúða
- Þegar kakóið er byrjað að sjóða hellið því þá í bolla og toppið með sykurpúðum og rjóma
Verði ykkur að góðu
María