Súkkulaðifylltar donuts bollur fyrir krakkana

höf: maria

-Samstarf-

Nú fer bolludagurinn að nálgast og eflaust margir komnir í bolluhugleiðingar.

Hér gefur að líta á dásamlegar súkkulaðifylltar donuts bollur sem ég ákvað að gera fyrir krakkana mína. Þau eru ekki mikið fyrir sultu né rjóma.

En þau elska donuts og súkkulaðiálegg eins og Nusica.

Ég held að margir foreldrar tengi og því ekki bara að slá tvær flugur í einu höggi og blanda þessu saman.

Ég notaði hefðbundið donuts deig sem ég nota til að baka ameríska kleinuhringi.

En í staðinn fyrir að forma deigið í kleinuhringi gerði ég það á sama hátt og berlínarbollur eru gerðar, nema bara minni svo úr urði litlar sætar bollur.

Litlar sætar bollur fyrir litla sæta fingur, nema stórir fingur elskuðu þær líka svo ég mæli með þeim fyrir bæði börn og fullorðna.

Súkkulaðifylltar donuts bollur fyrir krakkana

-Samstarf- Nú fer bolludagurinn að nálgast og eflaust margir komnir í bolluhugleiðingar. Hér gefur að líta á dásamlegar súkkulaðifylltar donuts bollur sem… Bakstur Súkkulaðifylltar donuts bollur fyrir krakkana European Prenta
Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Bollur 

  • 520 gr hveiti
  • 140 ml (145 gr) volg mjólk 
  • 90 ml volgt vatn
  • 50 gr sykur
  • 1 tsk borðsalt 
  • 25 gr pressuger (ath alltaf geymt í kæli í verslunum) eða 12 gr þurrger
  • 1 egg
  • 2 tsk vanilluextract (má líka nota vanilludropa)
  • 50 gr mjúkt smjör
  • 1 líter af bragðlausri steikingarolíu (best er Canola olía ef þið finnið hana eða grænmetisolía) Alls ekki nota sólblómaolíu eða steikingarfeiti (palmin) eins og notað er í kleinur !!

Fylling 

  •  1krukka Nusica súkkulaðismjör eða Nusica mjólkur og heslinhnetusmjör, ykkar er valið 
  • 1/2-1 dl rjómi 
  • Flórsykur til að sáldra yfir bollurnar

Aðferð

Bollur 

  1. Byrjið á að setja hveiti og salt í skál
  2. Búið svo til holu í miðjunni á hveitinu
  3. Setjið í holuna, mjólkina, vatnið, sykurinn og gerið
  4. Hrærið því svo vel saman í holunni, en ekki láta hveitið blandast við vökvann
  5. Bætið næst vanillunni og egginu út í vökvann í holunni. Best er að vera búin að hræra eggið upp fyrst.Hrærið aftur vel saman vökvanum án þess að blandist við hveitið
  6. Þegar allur vökvinn er vel hrærður saman má hræra öllu saman við hveitið með sleif þar til þið getið ekki hrært lengur
  7. Takið þá mjúkt smjörið og bætið við deigið og byrjið að hnoða annað hvort í höndunum eða í hrærivél með króknu. Ef deigið er klístrað setjið þá oggu pínupons hveiti...bara pínu pons og hnoðið áfram
  8. Mótið fallega glansandi kúlu úr deiginu og látið í skál með stykki yfir. Mér finnst best að setja degið til hefingar á hlýjan stað, eins og í gluggakistu með miðstöðvarofn undir, eða á gólfið ef þið eruð með gólfhita.
  9. Látið hefast í 1 klst (mega líka vera 2 klst ef þið viljið skreppa út á meðan eða lengur)
  10. Setjið ögn af hveiti á bretti eða borð og leggið fallegu deigkúluna varlega ofan á og fletjið deigið varlega út með kökukefli, þar til það er orðið að 1-2 cm þykkum ferning
  11. Þá má byrja að skera út hringi með litlum hringskera eða glasi. Leggið stykki yfir hringina og leyfið þeim að hefast í 20 mínútur
  12. Hitið 1 líter af olíu á djúpri pönnu eða potti og steikið svo 6-7 hringi í einu þar til verða gyllinbrúnir og snúið svo við og steikið á hinni hliðinni
  13. Leggið þá svo á eldhúspappír þegar þeir koma úr olíunni til að aukaolían fari í pappann en ekki inn í Kleinuhringinn

Fylling 

  1. Tæmið Nusica krukkuna ofan í skál og hellið rjóma 1/2-1 dl út á og þeytið eða hrærið saman þar til það er orðið nógu mjúkt til að sprauta úr spautupoka 
  2. Stingið næst röri í endann gegnum miðja bolluna og setjið Nusica smjörið í sprautupoka og sprautið inn í gatið á bollunni sitthvorumegin 
  3. Sáldrið að lokum flórsykri yfir bollurnar og berið fram 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here