Púnsgerbolla með Rommkúlurjóma og rifsberjahlaupi

höf: maria

-Samstarf-

Hér er á ferðinni æðisleg uppskrift sem ég gerði fyrir Bollublað Hagkaupa. Púnsbolla með rommkúlurjóma !!

Hér nota ég besta rifsberjagelið í bænum frá Den Gamle Fabrik.

Sulturnar frá Den Gamle Fabrik eru komnar í nýjar umbúðir !!!

Einnig er hægt að nota jarðarberjasultu, hinberja eða bláberja frá Den Gamle Fabrik á bollurnar.

Fyrir þá sem elska Púnsbollu með rommbragði þá er þetta BOLLAN !!!

Þessa fyllingu má líka vel gera í Craquelinbollurnar ef þið viljið ekki gerbollu, en uppskrift af þeim er hér.

Bolla Bolla Bolla

Púnsgerbolla með Rommkúlurjóma og rifbserjahlaupi

-Samstarf- Hér er á ferðinni æðisleg uppskrift sem ég gerði fyrir Bollublað Hagkaupa. Púnsbolla með rommkúlurjóma !! Hér nota ég besta rifsberjagelið… Bakstur Púnsgerbolla með Rommkúlurjóma og rifsberjahlaupi European Prenta
Serves: 9 bollur
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Gerbollur 9 stk

  • 2,5 dl ylvolg nýmjólk
  • 25 gr pressuger (fæst í mjólkurkælinum í Hagkaup)
  • ½ dl sykur
  • 1 egg
  • ½ tsk kardimommudropar
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 tsk fínt borðsalt
  • 1 tsk lyftiduft
  • 420 gr hveiti
  • 100 gr smjör við stofuhita
  • 1 egg til að pensla bollurnar með saman við 1 msk af nýmjólk (má sleppa)

Púns rjómi með Rommkúlum 

  • ½ líter af rjóma
  • 50 gr flórsykur
  • 180 gr rommkúlur frá Casali

Ofan á og á milli

  1. 2 msk flórsykur
  2. Rifsberjagel frá Den Gamle Fabrik

Aðferð

Gerbollur 

  1. Velgjið mjólkina í örbylgju þar til hún er ylvolg og setjið þá sykur og ger út í hana og hrærið vel
  2. Látið standa í eins og 5 mínútur á borði
  3. Setjið næst hveiti, salt og lyftiduft í hrærivélarskál og hrærið létt saman með króknum
  4. Bætið svo karimommu og vaniludropum út í mjólkurgerblönduna ásamt egginu og hrærið vel saman með písk
  5. Kveikjið nú á hrærivél á hnoð og bætið mjólkugerblöndunni varlega saman við meðan hún hnoðar
  6. Setjið svo smjörið í að lokum og hnoðið þar til deigið er búið að hringa sig um krókinn
  7. Leggjið viskasykki yfir skálina og látið hefast á volgum stað eins og í gluggakistu yfir miðstöðvarofni eða á gólfi með gólfhita í 30-60 minútur
  8. Takið svo hefaða deigið og skiptið því upp í 9 parta, ekki hnoða það neitt áður
  9. Gerið kúlur úr hverjum part og raðið á ofnplötu með bökunarpappa
  10. Leggjið viskastykki yfir bollurnar og látið hefast í 30 mínútur
  11. Kveikjið á ofninum á 220°C og bakið í 8-10 mínútur eða þar til þær eru orðnar fallega gylltar

Púns rjómi með Rommkúlum

  1. Þeytið rjómann ásamt flórsykri þar til hann er orðin vel stífur
  2. Setjið rommkúlur í poka (ágætt að nota 2 poka einn yfir annan) og berjið á þær með kökukefli þar til þær eru alveg orðnar vel molnaðar
  3. Kúlurnar verða klístraðar í pokanum og er því gott að losa aðeins um þær með því að hrista vel pokann
  4. Bætið næst rommkúlumylsnunni varlega saman við rjómann og hrærið varlega með sleikju þar til allt er vel blandað saman

Bollusamsetning

  1. Skerið bollu í sundur og setjið rifberjagel á botninn (Ef þið viljið má taka smá brauð innan úr bollunni svo hún verði minna massív)
  2. Setjið svo rommrjómann ofan á sultuna og lokið bollunni með efra laginu
  3. Sáldrið svo smá flórsykri í þunnu lagi yfir lokið

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here