Penne pasta titu Paz

höf: maria

Ég viðurkenni að ég er ekki mikil pastakona þrátt fyrir að ég elski nánast allt sem er með nóg af kolvetnum í.

Þessi pastaréttur hins vegar hefur mér alltaf fundist mjög góður, en hann hef ég fengið reglulega hjá henni elsku Titu Paz í gegnum tíðina.

Hér notast ég við eitt hráefni sem ég held að Íslendingar séu ekkert að nota mikið, en það er grísahakk, má líka vera svínahakk.

Ekki hugsa oj og láta ykkur bregða, ég veit að Íslendingar notast yfirleitt við nautahakk, en að nota grísahakk gerir réttinn mun bragðmeiri. Grísakjöt er mjög hlutlaust og dregur því vel í sig bragð úr öðrum hráefnum.

Hér er notaður mikill laukur og hvítlaukur, ásamt papriku og pastasósu og allt þetta blandast svo dásamlega saman við hakkið sem dregur í sig bragðið.

Ég bið ykkur að prófa og sjá sjálf hvort ykkur fannst það ekki gott.

Rétturinn er ekki bara afar einfaldur heldur einnig mjög ódýr og alveg ekta til að hafa í kvöldmat eftir annasaman dag á virkum degi. Krakkarnir mínir elska hann og því mæli ég með honum fyrir barnafólk.

Ég var ekkert að snobba neitt fyrir réttinum og keypti bara allra ódýrustu hráefnin. Penne pastað og pasta sósan voru bæði frá Euro shopper og það kemur alls ekkert niður á réttinum #ekki auglýsing.

Ég bara varð að segja ykkur frá Euro Shopper pastasósunni því hún er svo fáranlega ódýr og lýgilega góð. Allra uppáhalds krakkana minna, en hana nota ég reglulega líka á hakk og spagettí.

Penne pasta titu Paz

Ég viðurkenni að ég er ekki mikil pastakona þrátt fyrir að ég elski nánast allt sem er með nóg af kolvetnum í.… Pasta Penne pasta titu Paz European Prenta
Serves: 4-6
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • C.a 500-600  gr grísahakk
  • 250-350 gr ósoðið penne pasta
  • 1/2 hótel laukur (þessi risastóri) eða 1-2 venjulegir laukar smátt skornir
  • 1 geiralaus hvítlaukur eða 4-6 hvítlauksrif marin
  • 1 græn papríka smátt skorin
  • Pasta sósa í krukku að eigin vali en ég notaði frá Euro Shopper og hún er mjög fín (ekki auglýsing)
  • 2 msk ólífuolía
  • salt og pipar

Aðferð

  1. Saxið laukinn mjög smátt niður og papríkuna líka
  2. Merjið hvítlaukinn
  3. Setjið vatn í pott og saltið það mikið að það verði eins og sjóvatn
  4. Látið vatnið byrja að sjóða og setjið þá penne pastað út í og sjóðið í 10 mínútur eða eins og stendur á pakka
  5. Setjið olíu á pönnu og setjið á hæsta hita
  6. þegar olían er orðin vel heit lækkið þá hitann niður og setjið lauk, hvítlauk og papríku á pönnuna
  7. Passið að steikja ekki þannig brúnist heldur bara við vægan hita þannig soðni í olíunni og verði mjúkt
  8. saltið og piprið yfir
  9. Þegar grænmetið er orðið mjúkt setjið þá hakkið út á og saltið vel og piprið aftur
  10. Hækkið hitann á pönnuni aðeins upp og hrærið vel á meðan hakkið er að steikna í grænmetinu
  11. Þegar hakkið er til og pastað soðið, sigtið þá vatnið frá pastanu og setjið beint út á pönnuna án þess að skola pastað það má ekki
  12. Bætið svo við pastasósunni og blandið vel saman
  13. Gott er að bera þetta fram með fersku salati og hvítlauksbrauði

Ég lofa að þessi mun ekki begðast á góðu hversdagskveldi

Knús

María 

Endilega followið mig á Instagram hér 

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here