-Samstarf-
Ég elska að koma með stórar yfirlýsingar þegar ég get algjörlega staðið við þær.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1820-683x1024.jpg)
Ég er ekkert að skrökva þegar ég segi ofureinfalt pasta en hér þarf nánast varla að lyfta putta við að gera þennan rétt.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1821-683x1024.jpg)
Hver man ekki eftir Tik Tok pastanu sem fór eins og eldur um sinu um allt netið ?
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1822-683x1024.jpg)
Hér nota ég sömu hugmyndafræði en allt önnur hráefni, útkoman er hreint út sagt stórkostleg.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1823-683x1024.jpg)
Bragðmikill pastaréttur þar sem hráefnin skína í gegn. Öllu er hent saman í eldfast mót inn í ofn og svo soðið ferskt pastella pasta sett yfir.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1824-683x1024.jpg)
Sveppir, hvítlaukur, rjómi og ostur, er eitthvað sem getur ekki klikkað !
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1827-683x1024.jpg)
Heimilið fyllist af dásamlegum ilmi hvítlauks og sveppa og það er eins og bragðið af hráefninu fái meiri dýpt við að vera bakað svona í ofni.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1826-683x1024.jpg)
Örfá góð hráefni og meira þarf ekki til !!!
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1828-683x1024.jpg)
Ég mæli með að bera fram með réttinum parmesan ost og hvítlauksbrauð sem gerir allt enn betra.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1838-682x1024.jpg)
Ég mæli með að þið prófið þenna dýrðarrétt en ég held að þið verðið ekki svikin af honum.
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1839-683x1024.jpg)
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1829-682x1024.jpg)
![IMG_1843](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1843-585x585.jpg)
Hráefni
- 250 gr sveppir
- 4 hvítlauksrif
- 3,5-4 dl matreiðslurjómi
- 1 stk kryddostur með villisveppum
- salt og pipar
- 1 pakki eða 250 gr spínatfyllt ravíoli frá Pastella
- Ferskt timian (má sleppa)
Aðferð
- Byrjið á að skera sveppi niður í þunnar sneiðar og setja í eldfast mót ásamt heilum flysjuðum hvítlauksrifjunum
- Setjið svo kryddostinn fyrir miðju og saltið allt vel og piprið
- Hellið svo rjómanum yfir allt og bakið í 220 °C heitum ofni með blæstri í heilar 30 mínútur
- Sjóðið pastað skv. leiðbeininum á pakka, þegar eins og um10 mínútur eru eftir af fatinu í ofninum
- Takið svo fatið út og kremjið ostinn og hvítlaukinn með kartöflustappara eða gaffli og hrærið vel saman
- Hellið svo vatninu af pastanu og setjið pastað út á eldfasta mótið og hrærið öllu vel saman
- Mér finnst mjög gott að setja ferskt timian síðan yfir og bera fram með hvítlauskbrauði og parmesan osti
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1845-682x1024.jpg)
![](https://paz.is/wp-content/uploads/2021/11/IMG_1830-683x1024.jpg)
Verði ykkur að góðu
María