Starbucks sítrónuformkaka

höf: maria

Þeir sem hafa farið á Starbucks kannast eflaust við sítrónukökuna þeirra góðu.

Stundum langar mig svooo mikið í eitthvað sem ég hef smakkað erlendis og kemur þessi kaka ansi oft upp í hugann.

Hvað er ekki hægt að elska við þessa köku ? Mín útgáfa er dásamlega mjúk og svampkennd og mátulega sæt í bland við ferskleika.

Ég vil hafa mikið sítrónubragð og því er ég ekkert að spara sítrónubörkinn né sítrónusafann.

Hér skiptir öllu að hafa ferskar sítrónur og safann úr þeim, alls ekki notast við safa á flöskum eða í belg.

Ef þið notið ekki nýkreistan sítrónusafa á kakan það til að vera beisk og það viljum við ekki.

Hér skiptir öllu að ná fram sem ferskasta sítrónubragðinu í bland við það sæta.

Það sem gerir kökuna síðan fullkomna er að sjálfsögðu kremið og sítrónusíróp sem er pennslað á hana heita.

Kökuna er afar einfalt að gera og mæli ég með að þú prófir.

Starbucks sítrónukaka

Þeir sem hafa farið á Starbucks kannast eflaust við sítrónukökuna þeirra góðu. Stundum langar mig svooo mikið í eitthvað sem ég hef… Bakstur Starbucks sítrónuformkaka European Prenta
Serves: 1 stk formkaka Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

kaka

  • 200 gr sykur 
  • 115 gr mjúkt smjör 
  • 2 egg 
  • 1 tsk vanilludropar
  • 180 gr hveiti 
  • 1 tsk lyftiduft 
  • 1/2 tsk matarsódi 
  • 1/2 tsk fínt borðsalt 
  • Börkur af tveimur sítrónum (passa að hafa bara gula hlutann en ekki hvíta) 
  • 1,5 dl súrmjólk 

Síróp 

  • 60 gr flórsykur 
  • 1/2 dl nýkreistur sítrónusafi 

Krem 

  • 200 gr flórsykur 
  • 3 msk nýkreistur sítrónusafi 
  • 2 msk mjólk
  • 1 msk rjómaostur (má sleppa en gerir rosa gott bragð)

Aðferð

Kaka 

  1. Hitið ofninn á 180 °C blástur 
  2. Byrjið á að þeyta saman sykur og mjúkt smjör í góðan tíma eins og 5 mínútur plús þar til er orðið létt og ljóst 
  3. Hafið vélina áfram í gangi og setjið eitt egg út í meðan er að hrærast. Þegar það er blandað við smjörið setjið þá næsta egg ásamt vanilludropum, með vélina áfram í gangi 
  4. Hafið kveikt áfram á hrærivélinni og sigtið í aðra skál hveiti, salt, lyftiduft og matarsóda og bætið því út í hrærivélarskálina,á lægsta hraða, janft í 3 til 4 pörtum 
  5. Passið að hræra ekki of mikið en slökkvið á hrærivélinni þegar hveitið er komið rétt inn í deigið
  6. Raspið þá börkinn út í deigið (bara gula part ekki hvíta) og setjið súrmjólkina út í og kveikið aftur á hrærivélinni á lægsta hraða og hrærið eins lítið saman og þið komist upp með svo kakan verði ekki þung í sér og seig
  7. Setjið deigið í vel smurt brauðform og bakið í 45-55 mínútur. Gott er að stinga prjón í kökuna eftir 45 mín í ofninum og ef hann kemur hreinn upp úr er kakan til ,ef ekki bætið þá 5-10 mín við í viðbót og stingið prjóni aftur í kökuna eftir það 
  8. Búið til sírópið meðan kakan er í ofninum 

Síróp 

  1. Hrærið flórsykri og nýkreystum sítrónusafa vel saman og leggjið til hliðar meðan kakan bakast
  2. Takið kökuna úr forminu þegar hún hefur kólnað eins og í 15 mínútur
  3. Þá er gott að pennsla sírópinu vel yfir hana alla, þið getið notað allt sírópið eða það magn sem þið kjósið. Ég notaði næstum allt sírópið, en mikilvægt er að pennsla því yfir kökuna meðan hún er enn heit eða volg
  4. Leyfið nú kökunni að kólna alveg niður og gerið kremið á meðan 

Krem 

  1. Sigtið flórsykur í skál og bætið sítrónusafanum út í ásamt mjólkinni 
  2. Mér finnst gott að þeyta kremið í handþeytara eða hrærivél svo það verði loftkennt og létt 
  3. Þegar kremið er orðið fallega hvítt bæti ég rjómaostinum út í og hræri vel saman 
  4. Kreminu er svo hellt yfir kökuna þegar hún hefur alveg kólnað 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here