Ofureinfaldur Satay kjúklingapottréttur með salthnetumylsnu og grjónum

höf: maria

Stundum hef ég hreinlega ekki tíma til að elda. Þá finnst mér rosalega gott að geta gripið í eitthvað sem tekur enga stund að gera en er samt næringarríkt og gott.

Þessi réttur hér er einn af þeim sem ég elska að gera þegar lítill tími er til að elda eða bara þegar mig langar í hann. Hann tekur akkurat enga stund að gera og þarf ekki að nostra við hann heilu stundirnar.

Útkoman er samt sem áður dásamleg, mildur hnetu og chilikeimur sem ég poppa ögn upp með dásamlegri fiskisósu, soya og hvítlauksmauki til að gefa réttinum ögn meiri skerpu og bragð.

Ofureinfaldur Satay kjúklingapottréttur með salthnetumylsnu og grjónum

Stundum hef ég hreinlega ekki tíma til að elda. Þá finnst mér rosalega gott að geta gripið í eitthvað sem tekur enga… Matur Ofureinfaldur Satay kjúklingapottréttur með salthnetumylsnu og grjónum European Prenta
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 4 kjúklingabringur eða 800-900 gr úrbeinuð læri
  • 1/2 dl grænmetisolía til steikingar
  • 1 lítill rauður chilibelgpipar án fræja
  • 1-2 niðurskorin vorlaukur (skera hann allan líka græna efsta hlutann)
  • 1 krukka af Satay sósu frá Blue Dragon
  • 2 tsk Minced garlic frá Blue Dragon
  • 1 msk Soya sósa frá Blue Dragon
  • 1 tsk fiskisósa frá Blue Dragon
  • 2 pokar af Tilda Pure Basmatigrjónum í pokum

Ofan á:

  • Fersk steinselja eða Kóríander (mæli frekar með steinselju en sumir elska kóríander)
  • 1/2 bolli jarðhnetur (salthnetur) malaðar í blandara

Aðferð

  1. Skerið niður chili og vorlauk í litla bita
  2. Skerið kjúklingin niður í gúllasbita eða lengjur
  3. Setjið grjóninn í pott og saltið og látið sjóða meðan verið er að gera réttinn
  4. Hitið olíuna á pönnu og setjið vorlauk og chili út á og lækkið hitann um leið og leyfið að mýkjast ögn
  5. Bætið næst kjúklingnum út á og saltið vel yfir
  6. Þegar kjúklingurinn er komin með hvítan lit á sig, (þarf ekki að steikjast í gegn verður þá þurr), bæti ég hvítlauksmaukinu út á og hræri vel saman
  7. Næst set ég svo krukkuna af Satay sósunni út á og bæti við soya og fiskisósunni
  8. Hærið vel saman og leyfið að sjóða í eins og 20  mínútur án loks
  9. Setjið salthneturnar í blandara og maukið þar til verður að grófu dufti
  10. Skerið steinselju smátt niður
  11. Berið nú fram með grjónum, hnetumylsnu og steinselju til að dreyfa yfir

Verði ykkur að góðu

María 

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here