Maarud kjúklingaréttur með rösti, beikon og löðrandi í ostum

höf: maria

-Samstarf-

Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Þessi réttur er bara blanda af því besta sem til er. Rösti kartöflur, kjúklingur, beikon og ostar toppað með Maarud snakki !!!

Ef þú ert að passa línurnar skaltu halda aðeins í við þig áður en þú færð þér þennan rétt, til að eiga nóg pláss inni, því af þessum þarf að fá sér oftar en einu sinni á diskinn.

Ég myndi hafa þennan sem svona partý rétt fyrir saumaklúbb eða sem heitan rétt í veislu. Hann er líka hægt að hafa sem kvöldmáltíð en þá mæli ég með fersku salati og nóg af því með.

Hér má heldur ekki sleppa tabasco sósunni en hægt er að stjórna því hversu sterkan þú vilt hafa réttinn. Ég set bara örlítið af henni til að gefa smá kikk en hann er alls ekki sterkur eins og ég geri hann.

Þennan rétt er afar einfalt að gera og mæli ég með að þú eigir stórt eldfast mót undir hann eða setjir hann í tvö minni mót því þetta er frekar stór uppskrift.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_4924-734x1024.jpg

Maarud kjúklingaréttur með rösti, beikon og löðrandi í ostum

-Samstarf- Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Þessi réttur er bara blanda af því besta sem til er. Rösti… Kjúklingur Maarud kjúklingaréttur með rösti, beikon og löðrandi í ostum European Prenta
Serves: 6-8 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 1 bréf beikon (bara svona frekar lítið en þið ráðið hversu mikið þið viljið)
  • 500 gr Aviko Rösti kartöflur 
  • 3x kjúklingabringur 
  • 1 dós sveppasúpa 
  • 1 bolli rifinn Mozzarella 
  • 1 bolli rifinn Cheddar 
  • 30 gr rifinn parmesan 
  • 1 bolli rjómi 
  • 1/2 bolli brætt smjör 
  • 1/2 bolli sýrður rjómi
  • 1 tsk chiliflögur 
  • 10-15 dropar tabasco sósa 
  • 1 tsk borðsalt
  • 1/2 tsk laukduft 
  • 1/2 tsk hvítlauksduft (ath ekki hvílaukssalt)
  • 1/2 tsk svartur pipar 

Ofan á:

  • Maarud flögur með salti og pipar 
  • 50 gr rifinn parmesan 
  • 1 tsk paprikuduft 

Aðferð

  1. Hér þurfið þið stóra skál 
  2. Hitið ofninn á 210 C°blástur 
  3. Afþýðið rösti kartöflurnar (ef það hefur gleymst er í lagi að setja þær 20 sek í örbylgjuofninn)
  4. Skerið svo bringur í smáa gúllasbita og beikon í smátt 
  5. Brytjið rösti kartöflurnar niður í skál og setjið kjúklinginn og beikonið út á (hrátt)
  6. Hrærið öllu vel saman 
  7. Takið nú aðra skál og setjið restina af hráefnunum út í hana. Sem sagt súpuna, mozzarella, cheddar, rjóma, brætt smjör, sýrðan rjóma og 30 gr parmesan ost og kryddið með chili flögum, salti, pipar, tabasco, hvítlauksdufti og laukdufti 
  8. Hrærið þessu mjög vel saman og hellið svo út á kjúklinginn í stóru skálinni 
  9. Hrærið öllu mjög vel saman og hellið í eldfast mót og stingið í heitan ofninn í 20 mínútur 
  10. Takið svo út og lækkið ofn niður í 180 C°blástur 
  11. Stráið 50 gr af parmesan yfir réttinn og myljið Maarud snakk flögur með salt og pipar yfir og kryddið með paprikuduftinu
  12. Stingið í ofninn í aðrar 15 mín

Punktar

Þennan rétt er afar einfalt að gera og mæli ég með að þú eigir stórt eldfast mót undir hann eða setjir hann í tvö minni mót því þetta er frekar stór uppskrift. Ég myndi hafa þennan sem svona partý rétt fyrir saumaklúbb eða sem heitan rétt í veislu. Hann er líka hægt að hafa sem kvöldmáltíð en þá mæli ég með fersku salati og nóg af því með og jafnvel góðu nýbökuðu snittubrauði líka.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_4894-683x1024.jpg

Verði ykkur að góðu

Megið endilega fylgja mér á Instagram

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here