Kjúklingabringur í súrsætri sósu….á kínverskan máta

höf: maria

Mér hefur alltaf fundist svínakjöt í súrsætri sósu mjög góður kínverskur réttur. Hins vegar set ég alveg smá spurningamerki við hversu hollur þessi réttur er á kínastöðunum.

Nú eða jafnvel sósan í krukkunum sem er oft notuð heima við, til að gera þennan dásamlega rétt.

Það er nú oft þannig að ég hef fengið hugmynd af mínum uppáhaldsuppskriftum þegar ég hef verið í einhverskonar hollustuátökum, en þó það sé búið að hollustuvæða þennan rétt þýðir það ekki að það komi niður á bragðinu.

Þvert á móti því mér finnst hann enn betri svona, og vona að ykkur eigi eftir að finnast það líka. Réttinn er best að bera fram með soðnum grjónum löðrandi í soja eða Tamarísósu.

Kjúklingabringur í súrsætri sósu....á kínverskan máta

Mér hefur alltaf fundist svínakjöt í súrsætri sósu mjög góður kínverskur réttur. Hins vegar set ég alveg smá spurningamerki við hversu hollur… Matur Kjúklingabringur í súrsætri sósu….á kínverskan máta European Prenta
Serves: 4
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 3-4 kjúklingabringur (800 gr-1000 gr
  • 1 gulrót
  • 1/2-1 græn papríka
  • 1 rauð papríka
  • 1 dós niðurskorin ananas
  • 1/2 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 msk ólífuolía eða kókósolía
  • 1/2 dl agavesíróp
  • 2 msk sýður rjómi (með graslauknum er bestur)
  • 1 dós vatnshnetur (Waternuts, fást í Bónus og víðar)
  • 1 flaska Himnesk tómatsósa (sjá mynd neðar ekki nota aðra sósu en þessa en hún fæst í Bónus, passið að það sé tómatsósa ekki tómatpassata eða annað )
  • 1 flaska af tómatsósunni fyllt af vatni og ananassafanum úr dósinni
  • 10 cm bútur af engiferrót (má sleppa ef vill)
  • salt og pipar

Aðferð

  1. Byrjið á að setja grjón í pott og sjóða svo þau séu til á sama tíma og rétturinn
  2. Skerið allt grænmetið niður í mjóar ræmur og hvítlaukinn í þunnar skífur
  3. Skerið bringurnar einnig niður í langa strimla
  4. Hitið olíu á pönnu og setjið allt grænmetið út á við miðlungshita og passið að brenna það ekki við pönnuna bara mýkja
  5. saltið vel yfir og leyfið að malla þar til orðið aðeins mjúkt
  6. setjið næst bringurnar út á grænmetið og saltið vel og piprið yfir
  7. þegar bringurnar eru orðnar hvítar að lit er tímabært að setja alla flöskuna af tómatsósunni út á. Það á ekki að steikja bringurnar alveg í gegn
  8. þegar flaskan er tóm setjið þá ananassafann sem varð eftir af ananasnum í hana og fyllið svo upp í flöskuna með vatni og hristið vel
  9. Hellið vatninu svo út á pönnuna og bætið við 1/2 dl af agavesíróp, ananasnum og vatnshnetunum út á , og látið suðuna koma upp frekar kröftuglega
  10. Eftir 10 mínútna suðu er gott að bæta við sýrða rjómanum og hræra vel inn í sósuna
  11. leyfið svo að malla frekar kröftuglega í 10-15 mínútur í viðbót á pönnu án loks en þá þykknar sósan.Passið að hræra regluega í

Verði ykkur að góðu

María 

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here